2015-03-31 13:20:59 CEST

2015-03-31 13:22:00 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Garðabær - Ársreikningur

Ársreikningur Garðabæjar 2014


Sterk fjárhagsstaða og góð afkoma

Niðurstaða ársreiknings Garðabæjar fyrir árið 2014 sýnir vel sterka
fjárhagsstöðu bæjarins. Rekstrarniðurstaða er jákvæð um 482 m.kr. en áætlun
gerði ráð fyrir rekstrarafgangi að fjárhæð  159 m.kr. Þessa góðu niðurstöðu má
fyrst og fremst rekja til hærri tekna en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir, sem
skýrist m.a. af fjölgun íbúa umfram spár og lægri fjármagnsgjalda vegna lágrar
verðbólgu.  Ársreikningurinn var lagður fram í bæjarráði Garðabæjar í dag,
þriðjudaginn 31. mars 2015, og er aðgengilegur á vef Garðabæjar
www.gardabaer.is. 

Góð niðurstaða staðfestir traustan rekstur Garðabæjar og gott jafnvægi
rekstrargjalda í samanburði við áætlanir.   Rekstrartekjur ársins námu 10.724
m.kr. og rekstrargjöld með fjármagnsliðum voru 10.242 m.kr.. Niðurstaðan er því
jákvæð sem nemur 482 m.kr.  Þrátt fyrir það eru álögur á íbúa lágar í Garðabæ
en álagningarhlutfall útsvars er  13,7% sem er með því lægsta sem gerist á
landinu. 

Stærsti liðurinn í rekstri bæjarins er laun og launatengd gjöld sem námu 5.239
m.kr. Stærsti málaflokkurinn er fræðslu- og uppeldismál en til hans er varið
4.702 m.kr..   Tæplega  1.200 m.kr. fara til íþrótta- og æskulýðsmála og 975
m.kr. í félagsþjónustu. 

Framkvæmdir síðasta árs námu samtals 1.573 m.kr. en áætlun gerði ráð fyrir
1.446 m.kr. Stærstu framkvæmdir ársins voru bygging bílatæðakjallara á
Garðatorgi fyrir um 407 m.kr., framkvæmdir við stækkun Hofsstaðaskóla og
endurbætur í grunn- og leikskólum bæjarins fyrir tæpar 300 m.kr.  Þá námu
framkvæmdir við gatnagerð um 420 m.kr.. 

Allar kennitölur í rekstri staðfesta fjárhagslegan styrk Garðabæjar.
Veltifjárhlutfall er 0,63 og eiginfjárhlutfall  54%. Skuldahlutfall hefur
lækkað, er 93% en var 98% árið 2013. Langtímaskuldir við lánastofnanir og
leiguskuldir nema samtals 5.717 m.kr. samanborið við 5.804 m.kr. árið 2013. 
Framlegðarhlutfall er 13%. 

Eignir nema samtals 21.551 m.kr. árið 2014 og hafa hækkað um 989 m.kr. milli
ára. Veltufé frá rekstri er 1.393 m.kr. en var 1.576 m.kr. árið 2013. 

Íbúar Garðabæjar voru 14.450 þann 1. desember 2014 samanborið við 14.137 árið
áður sem gerir íbúafjölgun um 2,2%. 





Nánari upplýsingar veitir: Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, sími: 820 8541,
netfang: gunnar@gardabaer.is.