|
|||
2016-12-02 16:32:14 CET 2016-12-02 16:32:14 CET REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA Arion Bank hf. - FyrirtækjafréttirArion banki greiðir niður skuldabréf um 27 milljarð krónaÞann 7. desember mun Arion banki greiða niður skuldabréf um 237.120.000 Bandaríkjadali, auk áfallinna vaxta, eða sem nemur um 27 milljarði íslenskra króna. Skuldabréfið nam 747.481.000 Bandaríkjadölum (97 milljarðar kr.) þegar það var gefið út í upphafi árs. Greiðslan kemur til viðbótar við greiðslu frá því í maí að fjárhæð 252.697.000 Bandaríkjadala. Staða skuldabréfsins eftir framangreindar greiðslur er 257.664.000 Bandaríkjadalir. Skuldabréfið er í eigu Kaupþings og var útgáfa þess liður í aðgerðum sem snéru að afnámi fjármagnshafta. Greiðslan er í samræmi við ákvæði skuldabréfsins sem kveða á um að Arion banki skuli greiða inn á bréfið gefi bankinn út skuldabréf í erlendri mynt eins og gert var þann 1. desember 2016 þegar Arion banki gaf út skuldabréf að upphæð 300 milljónir evra. Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka, haraldur.eidsson@arionbankis, s: 856 7108. |
|||
|