2015-11-19 18:38:32 CET

2015-11-19 18:39:35 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reitir fasteignafélag hf. - Ársreikningur

Rekstrarhagnaður Reita 4.715 milljónir á fyrstu níu mánuðum ársins 2015


Stjórn Reita fasteignafélags hf. hefur samþykkt árshlutareikning félagsins
fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2015. Helstu lykiltölur árshlutareikningsins
eru: 

  -- Leigutekjur félagsins námu 6.620 millj. kr. (2014: 6.343 millj. kr.)
  -- Vöxtur tekna frá fyrra ári var 4,4%
  -- Rekstrarhagnaður (NOI) tímabilsins var 4.715 millj. kr. (2014: 4.483 millj.
     kr.)
  -- Matsbreyting fjárfestingareigna nam 5.071 millj. kr. (2014: 1.516 millj.
     kr.)
  -- Hagnaður tímabilsins var 5.221 millj. kr. (2014: 1.807 millj. kr.)
  -- Fjárfestingareignir hafa aukist um 7.977 millj. kr. frá áramótum og var
     virði þeirra 108.987 millj. kr. samanborið við 101.010 millj. kr. í lok árs
     2014.
  -- Eigið fé í lok tímabilsins var 45.074 millj. kr. (2014: 39.948 millj. kr.)
  -- Eiginfjárhlutfall var 40,5% í lok tímabilsins (2014: 39,1%)
  -- Vaxtaberandi skuldir í námu 57.897 millj. kr. (2014: 55.204 millj. kr.)

Guðjón Auðunsson, forstjóri:
„Rekstur Reita var á nokkuð lygnum sjó á þriðja ársfjórðungi og er það mat
stjórnenda að afkoma fyrstu níu mánaða ársins hafi verið í samræmi við áætlanir
félagsins. 

Ein markverðustu tíðindin úr rekstri Reita á síðustu mánuðum urðu þegar ákveðið
var að ganga til samninga við eigendur fasteignasjóðanna SRE I og SRE II sem
eru í rekstri Stefnis hf., um kaup Reita á tilteknum fasteignafélögum.
Heildarvirði kaupanna er nálægt átján milljörðum króna og stækkar eignasafn
félagsins um 9% í fermetrum talið en virði eykst í kringum 17%. 

Kaupin falla vel að eignasafni félagsins og fjárfestingarstefnu þess, samræmast
vel þeim markmiðum sem félagið hefur sett sér varðandi fjármagnsskipan til
framtíðar og arðsemi. Unnið er að afléttingu fyrirvara vegna kaupanna með
framkvæmd áreiðanleikakannana og könnun á samþykki Samkeppniseftirlits fyrir
viðskiptunum.“ 

Rekstrarafkoma fyrstu níu mánuði ársins

Leigutekjur fyrstu níu mánuði ársins námu 6.620 millj.kr. samanborið við 6.343
millj. kr. á sama tímabili árið áður. Tekjur hafa vaxið lítillega umfram
verðlag en að auki skýra breytingar á eignasafni hluta hækkunar á milli ára. 

Rekstarkostnaður fjárfestingareigna nam 1.586 millj. kr. samanborið við 1.565
millj. kr. á sama tímabili árið 2014. Rekstrarkostnaður jókst um 1,3% milli
ára. Töluverð sveifla hefur verið í kostnaði vegna viðhalds og endurbóta á
milli fjórðunga á árinu. 

Stjórnunarkostnaður félagsins jókst um 8% milli ára og nam 319 millj. kr.
samanborið við 295 millj. kr. árið áður. Starfsmönnum félagsins fjölgaði á
milli tímabila. Á fyrsta ársfjórðungi var gjaldfærður 87 millj. kr. kostnaður
sem tengist skráningu hlutabréfa félagsins og skuldabréfaflokks þess í kauphöll
í byrjun aprílmánaðar. 

Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu, fjármagnsliði og kostnað við skráningu
var 4.715 millj. kr. samanborið við 4.483 millj. kr. árið áður. 

Fjárfestingareignir og fjármögnun

Fjárfestingareignir eru metnar á gangvirði í árshlutauppgjörum með sömu
aðferðafræði og í ársreikningi félagsins. Matið tekur mið af eignabreytingum
milli tímabila, breytingum í rekstrarumhverfi félagsins og breytingum á
ávöxtunarkröfu verðtryggðra skuldabréfa sem lækkar veginn meðalkostnað
fjármagns (WACC) að þessu sinni. Vegið mat framangreindra þátta hækkar mat
fjárfestingareigna um 5.071 millj. kr. samanborið við 1.516 millj. kr. á sama
tímabili árið áður. Er þetta um 5% hækkun á virðismatinu milli tímabila. 

Á fyrstu níu mánuðum ársins námu fjárfestingar félagsins í fjárfestingareignum
umfram seldar eignir rúmum 2.900 millj. kr. en stærsta fjárfestingin var kaup á
félagi sem er eigandi Hótels Íslands að 
Ármúla 9.

Hrein fjármagnsgjöld námu 3.173 millj. kr. samanborið við 3.679 millj. kr. á
sama tímabili árið áður. Meðalkjör af verðtryggðri fjármögnun félagsins eru
tæplega 4,0%. Engar breytingar voru á samsetningu skulda félagsins frá lokum
annars ársfjórðungs og námu vaxtaberandi skuldir 57.897 millj. kr. í lok
fjórðungsins samanborið við 55.204 í lok árs 2014. 

Áætlun um útgáfu skuldabréfa

Stjórn Reita hefur samþykkt útgáfu á skuldabréfum undir nýjum útgáfuramma. Með
rammanum er mynduð heildarumgjörð um skuldabréfaútgáfu félagsins á næstu árum
og undir honum er þegar áformað að gefa út bréf fyrir allt að 10 milljarða
króna fram til loka mars mánaðar 2016. 

Útgáfuramminn rúmar skuldabréf af ýmsum toga eins og nánar verður gert grein
fyrir í grunnlýsingu rammans sem áætlað er að birta í lok nóvember og kynnt er
í fjárfestakynningu sem nálgast má á heimasíðu félagsins. 

Reitir áforma lokuð útboð á nýjum skuldabréfum með reglulegum hætti, í fyrsta
sinn nálægt næstu mánaðamótum, en nánari tímasetning verður tilgreind síðar.
Tilgangur fyrirhugaðrar skuldabréfaútgáfu að andvirði allt að 10 milljarða
króna er endurfjármögnun á hluta núverandi skulda Reita, stuðningur við þróun
félagsins og undirbúningur að því að auka breiddina í fjármögnun félagsins. 

Horfur fyrir árið 2015

Reitir hafa gefið út afkomuhorfur fyrir árið í heild. Áætlað var að
rekstrartekjur yrðu á bilinu 8.850 til 8.950 millj. kr. og að rekstrarhagnaður
fyrir matsbreytingu og fjármagnsliði yrði á bilinu 6.250 til 6.350 millj. kr.
Engar stórar breytingar hafa átt sér stað í rekstrarhorfum fyrir árið sem ekki
þegar hefur verið gerð grein fyrir. Kaup Reita á tilteknum fasteignafélögum
fasteignasjóðanna SRE I og SRE II sem eru í rekstri Stefnis, munu að óbreyttu
fyrst koma fram á árinu 2016. 

Átök og óvissa á vinnumarkaði um miðbik ársins dró kraft úr eftirspurn eftir
atvinnuhúsnæði en undanfarið hefur markaðurinn verið að taka við sér. Nú
stefnir í að ný útleiga sem samið verði um á árinu verði í takti við áætlanir
félagsins. 

Kynningarfundur

Reitir bjóða fjárfestum og markaðsaðilum á opinn fund þar sem Guðjón Auðunsson,
forstjóri, og Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, munu kynna árshlutauppgjörið.
Fundurinn verður haldinn föstudaginn 20. nóvember kl. 8:30 í fundarsal
Golfklúbbs Reykjavíkur á Grafarholtsvelli. Kynningarefni fundarins er
aðgengilegt á fjárfestasíðu Reita, www.reitir.is/fjarfestar. 

Frekari upplýsingar

Nánari upplýsingar veita Guðjón Auðunsson, forstjóri, í síma 575 9000 eða 660
3320 og Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 575 9000 eða 669 4416. 

Um Reiti

Reitir sérhæfa sig í þjónustu og rekstri atvinnuhúsnæðis með áherslu á
verslunarhúsnæði, skrifstofuhúsnæði og hótelbyggingar á höfuðborgarsvæðinu.
Heildareignir Reita í lok þriðja ársfjórðungs 2015 námu rúmum 111 milljörðum
króna. Fasteignir í eigu félagsins eru um 130 talsins og um 410 þúsund
fermetrar að stærð. Meðal þeirra má nefna stærstan hluta Kringlunnar, Hilton
Reykjavík Nordica, Icelandair hótel Reykjavík Natura, Kauphallarhúsið og
nokkrar af perlum íslenskrar byggingarsögu í miðbæ Reykjavíkur. Stærstu
leigutakar Reita eru Hagar, Flugleiðahótel, ríki og sveitarfélög samtals með
tæpan helming tekna félagsins.