2015-11-19 19:48:39 CET

2015-11-19 19:49:41 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Eimskipafélag Íslands hf. - Ársreikningur

Eimskip kynnir afkomu þriðja ársfjórðungs 2015


  -- Rekstrartekjur voru 129,7 milljónir evra, jukust um 10,1 milljón evra eða
     8,5% frá Q3 2014
  -- EBITDA nam 16,4 milljónum evra, jókst úr 12,6 milljónum evra eða um 29,5%
     frá Q3 2014
  -- Hagnaður nam 8,5 milljónum evra, jókst úr 7,5 milljónum evra eða um 12,7%
     frá Q3 2014
  -- Flutningsmagn í áætlunarsiglingum á Norður-Atlantshafi jókst um 2,8% frá Q3
     2014
  -- Flutningsmagn í frystiflutningsmiðlun jókst um 1,0% frá Q3 2014
  -- Eiginfjárhlutfall var 61,0% og nettóskuldir námu 52,5 milljónum evra í lok
     september
  -- Áætlaðri EBITDA ársins 2015 hefur verið breytt og er hún á bilinu 44,5 til
     46,5 milljónir evra

Gylfi Sigfússon, forstjóri

„Rekstrartekjur og EBITDA á þriðja ársfjórðungi 2015 eru þær hæstu á einum
ársfjórðungi frá árinu 2009. Rekstrartekjur voru 129,7 milljónir evra og jukust
um 8,5% frá þriðja ársfjórðungi á fyrra ári, en þar af var söluhagnaður vegna
skips í smíðum að fjárhæð 2,0 milljónir evra. EBITDA nam 16,4 milljónum evra og
er það 29,5% hækkun frá þriðja ársfjórðungi 2014. Hagnaður eftir skatta nam 8,5
milljónum evra á fjórðungnum samanborið við 7,5 milljónir evra í fyrra og jókst
um 12,7%. 

Flutningsmagn í áætlunarsiglingum félagsins á Norður-Atlantshafi á fjórðungnum
jókst um 2,8% samanborið við þriðja ársfjórðung í fyrra. Mikill vöxtur var í
flutningum tengdum Íslandi á meðan minni vöxtur var í Noregi sem skýrist meðal
annars af því að færri skip voru í rekstri í Noregi vegna reglubundins
viðhalds. Magn dróst lítillega saman í  Færeyjum sem skýrist af breyttu
flutningamynstri á uppsjávarfiski. Flutt magn í frystiflutningsmiðlun óx einnig
hægar en búist var við samanborið við þriðja ársfjórðung síðasta árs vegna
erfiðra markaðsaðstæðna í Kína, en aðrir markaðir eru í ágætu horfi. 

Tekjur félagsins á fyrstu níu mánuðum ársins jukust um 10,9% á milli ára og
námu 369,0 milljónum evra. EBITDA fyrir tímabilið nam 35,5 milljónum evra og
jókst um 5,7 milljónir evra á milli ára eða um 19,4%. Hagnaður eftir skatta
jókst um 37,1% og nam 15,5 milljónum evra. Flutningsmagn í áætlunarsiglingum á
Norður-Atlantshafi jókst um 2,2% frá sama tímabili í fyrra og magn í
frystiflutningsmiðlun um 7,9%. 

Í október 2015 fékk gráa leiðin aukið hlutverk þar sem öðru 500 gámaeininga
leiguskipi var bætt við leiðina til að auka afkastagetu og bætt var við
viðkomum í Århus í Danmörku, Halmstad í Svíþjóð og í Swinoujscie í Póllandi. 

Fyrsti áfangi af nýrri tíu þúsund tonna frystigeymslu félagsins í Hafnarfirði
var tekinn í notkun um miðjan nóvember. Gert er ráð fyrir að byggingu
geymslunnar verði lokið fyrir árslok. 

Varðandi vinnumarkaðinn á Íslandi þá er Eimskip nú í samningaviðræðum við félag
skipstjórnarmanna og vélstjóra og samningar við aðra íslenska áhafnarmeðlimi
verða lausir um áramótin. Ekki er ljóst á þessari stundu hver áhrif nýrra
kjarasamninga verða. 

Stjórn og stjórnendur Eimskips halda áfram að meta möguleg
fjárfestingartækifæri til vaxtar í samræmi við framtíðarsýn félagsins. Nokkur
verkefni eru í vinnslu sem væntanlega skýrast á næstu misserum. 

Það er ánægjulegt að endurgreiðslu á innborgun á nýsmíði skips í Kína er lokið,
en þann 13. október tilkynnti félagið um endurgreiðslu að fjárhæð 16,1 milljón
dollara. Félagið skoðar ýmsa möguleika varðandi endurnýjun á skipum félagsins. 

Horfur fyrir fjórða ársfjórðung eru góðar, októbermánuður er í takt við okkar
væntingar og magn í flutningakerfum félagsins það sem af er nóvember gefur
jákvæðar vísbendingar. Í ljósi þessa höfum við ákveðið að þrengja afkomuspá
félagsins fyrir árið 2015 úr 43 til 47 milljónum evra í EBITDA á bilinu 44,5
til 46,5 milljónir evra.“ 

Frekari upplýsingar

  -- Gylfi Sigfússon, forstjóri, sími: 525 7202
  -- Hilmar Pétur Valgarðsson, framkvæmdastjóri fjármála- og stjórnunarsviðs,
     sími: 525 7202
  -- Erna Eiríksdóttir, forstöðumaður fjárfestatengsla, sími: 825 7220, netfang:
     investors@eimskip.is