2015-04-24 16:27:57 CEST

2015-04-24 16:28:57 CEST


Islandic
Tryggingamiðstöðin hf. - Fjárhagsdagatal

Uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2015 birt þann 30. apríl – kynningarfundur mánudaginn 4. maí kl. 8:30


TM mun birta árshlutauppgjör fyrir fyrsta ársfjórðung 2015 eftir lokun markaða
fimmtudaginn 30. apríl næst komandi. 

TM býður markaðsaðilum á kynningarfund um afkomu félagsins á fyrsta
ársfjórðungi kl. 8:30 mánudaginn 4. maí. Þar mun Sigurður Viðarsson forstjóri
kynna uppgjörið og svara spurningum. Fundurinn fer fram í höfuðstöðvum TM að
Síðumúla 24. 4. hæð. 

Árshlutareikning og afkomutilkynningu verður hægt að nálgast á vef félagsins
www.tm.is. Kynning á uppgjörinu verður einnig aðgengileg á sama stað við upphaf
kynningarfundar. Einnig má fylgjast með fundinum í gegnum vefinn á slóðinni:
https://global.gotomeeting.com/join/344789917