2015-04-24 20:39:51 CEST

2015-04-24 20:40:52 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Ríkisútvarpið ohf. - Fyrirtækjafréttir

Tilkynning frá Ríkisútvarpinu ohf.


Á morgun, 25. apríl mun Ríkisútvarpið ohf. (RÚV) óska eftir kauptilboðum í
byggingarrétt á hluta lóðar að Efstaleiti 1. Tilboðsfrestur rennur út þann 29.
maí, kl. 16:00. Nánari upplýsingar og gögn er að finna á www.ruv.is/lodin.
Sölulýsing (útboðsskilmálar) verður aðgengileg frá 29. apríl, kl. 12:00.
Lögmannsstofan Juris slf., Borgartúni 26, hefur umsjón með söluferlinu f.h.
RÚV. 
Í janúar 2015 samþykktu Reykjavíkurborg og RÚV að hefja vinnu við breytingar á
aðal- og deiluskipulagi og efna til hugmyndasamkeppni um svæðið. Stefnt er að
blandaðri, vistvænni byggð með spennandi almenningsrýmum og heilstæðum
götumyndum. Niðurstöðu er að vænta í lok júní. 
Sala á byggingarrétti lóðarinnar við Efstaleiti er hluti af fjárhagslegri
endurskipulagningu RÚV sem staðið hefur yfir á undanförnum mánuðum.