2011-07-05 17:36:41 CEST

2011-07-05 17:37:42 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Útboð óverðtryggðra ríkisbréfa RIKB 13 0517 og RIKB 16 1013 SKIPTIÚTBOÐ


Föstudaginn 8. júlí kl. 11:00 fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins með
tilboðsfyrirkomulagi. 

Boðin verða til sölu óverðtryggð bréf í flokkunum RIKB 13 0517 og RIKB 16 1013.
Heildarfjárhæð samþykktra tilboða verður tilkynnt að loknu útboði. 

Lánamál ríkisins áskilja sér rétt f.h. ríkissjóðs til að samþykkja öll tilboð
sem berast, að hluta eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa
er heimilt að gera tilboð í útboðinu en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir
fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. 

Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á
sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að
öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. 

Eftir að niðurstöður útboðs ríkisbréfa liggja fyrir munu Lánamál ríkisins bjóða
jafnvirði 10%, reiknuð af nafnverði þess sem selt var í útboðinu til
aðalmiðlara á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 12.
júlí 2011. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast
kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. 

Greiðslu- og uppgjörsdagur er miðvikudagurinn 13. júlí 2011.

SKIPTIÚTBOÐ

Aðilar eiga þess kost í útboðinu að kaupa bréf í RIKB 13 0517 og RIKB 16 1013
með sölu á RIKB 11 0722, sem fellur á gjalddaga 22. júlí nk. Lánamál ríkisins
kaupa RIKB 11 0722 á fyrirfram ákveðnu verði þ.e. hreina verðinu 100,12
(107,922740 með áföllum vöxtum m.v. 100 kr. nafnverðseiningu) m.v. uppgjör 13.
júlí 2011. Til skýringar, jafngildir verðið 2,90% í flötum vöxtum. Andvirði
bréfanna ásamt áföllnum vöxtum kemur þá sem greiðsla fyrir kaupum á nýjum
bréfum. Þeir sem vilja nota RIKB 11 0722 sem greiðslu í útboðinu þurfa að
tilkynna lánamálum ríkisins það eigi síðar en kl. 14:00 þriðjudaginn 12. júlí
2011.