|
|||
2009-01-26 14:08:02 CET 2009-01-26 14:09:03 CET REGULATED INFORMATION Icebank - FyrirtækjafréttirSparisjóðabankinn fær viðbótar frestSparisjóðabanki Íslands hf. hefur fengið frest til 28. febrúar n.k. til að leggja fram frekari tryggingar í kjölfar veðkalls sem Seðlabanki Íslands sendi bankanum hinn 20. október sl. Unnið er að því að afla samþykkis annarra stærstu lánveitenda bankans fyrir jafn löngum fresti, en þeir lánveitendur eru aðallega erlendir bankar. Að undanförnu hefur verið unnið að fjárhagslegri endurskipulagningu bankans með framangreindum aðilum og mun sú vinna halda áfram næstu vikurnar. Þá hefur Fjármálaeftirlitið sömuleiðis veitt bankanum jafn langan frest til þess að koma eiginfjárgrunni sínum aftur í horf sem uppfyllir skilyrði laga um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002. |
|||
|