2012-02-21 00:12:17 CET

2012-02-21 00:13:20 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Eyrir Invest ehf. - Ársreikningur

Afkoma Eyris Invest ehf. 2011


Traustur grunnur fyrir áframhaldandi vöxt og virðissköpun



  -- Nettó virði eigna í árslok er 202 m evra samanborið við 193 m  í ársbyrjun.
  -- Heildareignir Eyris í árslok eru 395 m og eiginfjárhlutfall er 51% (2010;
     44%). Sjóður og ígildi handbærs fjár í árslok nema 26 m.
  -- Hagnaður ársins var 1,0 m  (2010; 52 m evra).
  -- Í desember var hlutafé Eyris aukið um 10%. Lífeyrissjóður verzlunarmanna
     skrifaði sig fyrir allri hlutafjáraukningunni.
  -- Horfur í rekstri Eyris og lykileigna eru góðar.  Fjármögnun þeirra er í
     samræmi við stefnu og alþjóðleg viðmið þar sem nettó skuldir eru á bilinu
     2-4 x EBITDA.

Lykileignir Eyris eru 36% eignarhlutur í Marel og 17% eignarhlutur í Stork BV
sem á og rekur Stork Technical Services og Fokker Technologies.  Að auki
fjárfestir Eyrir í nýsköpunar- og sprotafyrirtækjum í gegnum Eyrir sprotar
slhf. sem leggur megináherslu á að styðja efnileg útflutningsfyrirtæki til
vaxtar og virðissköpunar. 

Eyrir Invest hefur skilað góðri ávöxtun til hluthafa frá stofnun félagsins á
miðju ári 2000 og reiknast   innra virði hlutabréfa 18,3 evrusent á hlut um
síðustu áramót á móti stofnverði sem var 1,4 evrucent á hlut.  Heimsmarkaðsverð
hlutabréfa mælt í evrum hefur á sama tímabili lækkað að meðaltali um 4% árlega
sem jafngildir 37% lækkun (MSCI). 



 Árni Oddur Þórðarson, forstjóri:

“Árið 2011 var viðburðarríkt hjá Eyri þar sem hæst ber framúrskarandi árangur
Marel, vel heppnuð kaup Stork Technical Services á RBG og stofnun Eyris sprota
samhliða hlutafjáraukningu undir árslok. 

Eyrir skilar lítilsháttar hagnaði á síðastliðnu ári sem er viðunandi í
krefjandi árferði á alþjóðamörkuðum. Fyrirtæki okkar hafa styrkt
samkeppnisstöðu sína með öflugri nýsköpun og sókn á ný markaðssvæði. Á heildina
litið erum við bjartsýn í upphafi árs 2012.“ 



Lykiltölur - Rekstrarreikningur                                                 
(í þús. evra)                                 2011     2011/6m     2010    2009*
--------------------------------------------------------------------------------
Rekstrartekjur:         
Afkoma af verðbréfum                       -30.977     -15.165   64.851    4.992
Tekjur v/br. reikningskilaaferðar           30.107           0        0        0
 hlutdeildar-                                                                   
félags                                                                          
Afkoma hlutdeildarfélaga                    11.650       2.583    7.491  -13.116
Vaxtagjöld, nettó                          -12.920      -5.487  -15.873  -13.592
Gengismunur                                  4.763       5.531   -3.254      183
                                          --------------------------------------
                   Hreinar rekstrartekjur    2.623     -12.538   53.215  -21.533
Rekstrargjöld:                                                                  
Laun og launatengd gjöld                       934         451      836      889
Annar rekstrarkostnaður                        732         370      560    1.241
                                          --------------------------------------
                                          --------------------------------------
                            Rekstrargjöld    1.666         821    1.396    2.130
Afkoma tímabilsins                             957     -13.359   51.819  -23.663
                                          --------------------------------------
Rekstrarliðir færðir beint á eigið fé         -488        -190  -18.639   -7.696
 samtals                                                                        
                                          --------------------------------------
Heildarafkoma tímabilsins                      469     -13.549   33.180  -31.359
                                          --------------------------------------
Hagn. á hlut, evrucent (hver hlutur 1         0,09       -1,33     5,14    -2,35
 ISK)                                                                           
                                          --------------------------------------
Heildarhagn á hlut, evrucent (hver hlutur     0,05       -1,34     3,29    -3,11
 1 ISK)                                                                         
                                          --------------------------------------
*) 2009 tölur aðlagaðar yngri tölum, þar sem gangvirðisbr. London Acquisition   
 (Stork) er færð meðal afkomu af verðbréfum                                     
Lykiltölur - Efnahagsreikningur                                                 
Eignir:                                       2011     2010        2009     2008
                                       -----------------------------------------
Handbært fé og bundnar bankainnistæður      10.474   22.758      27.526   40.732
Hlutafjárloforð                             15.377        0           0        0
Fjárfestingaverðbréf                       364.931  256.835     167.909  168.244
Hlutdeildarfélög                                 0  143.602     208.631  227.710
Afleiður og aðrar kröfur                     2.282    1.201         615   12.741
Rekstrarfjármunir                            2.082    2.050       2.119    2.180
                                       -----------------------------------------
                        Eignir samtals     395.146  426.446     406.800  451.607
                                       -----------------------------------------
                                       -----------------------------------------
Eigið fé og skuldir:                                                            
Eigið fé                                   202.493  186.648     153.469  184.185
Afleiður og ýmsar skuldir                      239    1.908         373   29.351
Lántaka                                    192.414  237.890     252.958  238.071
                                       -----------------------------------------
           Eigið fé og skuldir samtals     395.146  426.446     406.800  451.607
                                       -----------------------------------------
Eiginfjárhlutfall                            51,2%    43,8%       37,7%    40,8%





Lítilsháttar hagnaður varð af rekstri Eyris á árinu 2011 þrátt fyrir að
hlutabréfamarkaðir í heiminum hefðu almennt gefið eftir á árinu.  MSCI
heimsvísitala hlutabréfa í evrum lækkaði um 5,2% á árinu.  Misjafn gangur var í
þróun hlutabréfaverðs þar sem gengi fjármálafyrirtækja hríðféll en mörg
leiðandi tæknifyrirtæki með alþjóðlega tekjustrauma og breiðan hóp
viðskiptavina náðu góðum vexti í tekjum og hagnaði með tiheyrandi aukningu
hluthafavirðis. 

Efnahagur Eyris er traustur með 395 milljónir evra í heildareignir og 51%
eiginfjárhlutfall, góða lausafjárstöðu og langtímafjármögnun.  Í desember var
hlutafé Eyris aukið um 10% með útgáfu nýrra hluta. Lífeyrissjóður
Verslunarmanna skráði sig fyrir allri hlutafjáraukningunni. Hlutafjárútgáfan
eykur fjárfestingargetu Eyris Invest jafnframt því að breikka hluthafahóp
félagsins. 

Eignir Eyris eru færðar til bókar á gangvirði (fair value) eða á markaðsvirði í
samræmi við uppgjörsaðferðir alþjóðlegra fjárfestingarfélaga.  Á undanförnum
árum hefur Eyrir fært eignarhlut sinn í Marel með hlutdeildaraðferð.  Stjórn
Eyris hefur ákveðið að færa eignarhlutinn í Marel á markaðsvirði í því skyni að
gefa skýra og gagnsæja mynd af fjárhagsstöðu félagsins. Með því verður
eignarhluturinn færður samkvæmt staðli IAS 39 Financial Instruments:
Recognition and measurement. 

Kjarnaeignir nema rúmlega 90% af heildareignum Eyris.  Hagnaður vegna
hlutabréfa í Marel nemur 42 m evra.     Vegna lækkunar á hlutabréfum Össurar
frá áramótum og fram að sölu er fært 10 m evra tap á árinu 2011. Bókfært virði
17% eignarhlutar Eyris í Stork lækkar um 16 m evra á árinu vegna
markaðsaðstæðna í Evrópu. Hlutabréf Marel og Össurar eru skráð á Nasdaq OMX.
Stork er óskráð félag, bókað á sannvirði sem metið er á grundvelli kennitalna á
markaði og í viðskiptum með sambærileg félög. 

Á fyrri hluta árs 2011 seldi Eyrir öll hlutabréf sín í Össuri hf.  Í árslok
2010 átti Eyrir 14% hlut í félaginu, en Eyrir var stór hluthafi í Össuri frá
árinu 2004 með 20-25% eignarhlut megnið af tímanum.  Eyrir studdi vaxtastefnu
Össurar ötullega og meðan Eyrir var hluthafi þrefaldaðist velta Össurar og
hagnaður jókst verulega.  Fjárfestingin í Össuri skilaði gengishagnaði til
Eyris á tímabilinu. 



Helstu viðburðir 2011

Eyrir jók eignarhlut sinn í Marel í 36% en í upphafi árs var eignarhluturinn
32%. 

  -- Gengi hlutabréfa Marel hækkaði upp í 79 evrusent í árslok en í upphafi árs
     var gengið 65 evrusent. Marel skilaði öflugum og arðsömum innri vexti á
     árinu. Hagnaður Marel jókst umtalsvert frá fyrra ári þökk sé auknum
     rekstrarhagnaði og lægri fjármagnskostnaði.
  -- Eyrir hefur verið kjölfestueigandi Marel frá árinu 2005 og stutt
     vaxtastefnu Marel, meðal annars með verulegu hlutafjárframlagi í gegnum 
     hlutafjárútboð. Stjórn Marel leggur til að greiddur verði arður vegna
     ársins 2011 sem jafngildir 20% af rekstrarhagnaði. Slík arðgreiðsla leiðir
     til um 2,5 m evru arðgreiðslu til Eyris.

Eyrir á 17% hlut í Stork BV sem á og rekur Stork Technical Services  (STS) og
Fokker Technologies. 

  -- STS óx landfræðilega á árinu 2011 með yfirtöku á RBG, sem hefur
     höfuðstöðvar í Skotlandi og sérhæfir sig í þjónustu við alþjóðlegan
     orkuiðnað. Sameinuð starfsemi RBG og STS fer nú fram undir merkjum Stork
     Technical Services. STS er leiðandi þjónustuaðili í umsjón og viðhaldi
     eigna fyrir olíu- gas- og efnaiðnað. Eftir kaupin á RBG er Stork Technical
     Services með starfsemi í Norðusjó, Benelux-löndunum, Kaspíahafi, Afríku,
     Mið-Austurlöndum og mið- og Suður-Ameríku. Starfsmenn STS eru um 14.500 og
     ársvelta um 1,4 milljarðar evra.
  -- Á árinu 2011 fagnaði Fokker Technologies 100 ára afmæli fyrsta flugs
     Fokker. Heildarvelta Fokker var tæplega 700 milljónir evra og hjá félaginu
     starfa um 3.700 manns.

Hlutafé Eyris var aukið um 10% á árinu. Samhliða hlutafjáraukningunni stofnaði
Eyrir fjárfestingarfélagið Eyrir sprotar slhf. sem fjárfestir í nýsköpunar- og
sprotafyrirtækjum með megináherslu á að styðja efnileg útflutningsfyrirtæki til
vaxtar og virðissköpunar. 



Horfur

Horft fram á veginn er búist við góðum vexti og virðisaukningu í þeim
atvinnugreinum sem kjölfestueignir Eyris Invest starfa í; matvæla-, orku- og
flugiðnaði. Á síðastliðnum árum hafa lykilfélög Eyris stöðugt styrkt
markaðsstöðu sína og eru vel í stakk búin til að njóta góðs af efnahagsbata á
heimsvísu.   Afkoma getur verið breytileg frá ári til árs. 



Frekari upplýsingar veitir:

Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Eyris Invest

Sími: 525-0200

www.eyrir.is





Um Eyri

Eyrir Invest er alþjóðlegt fjárfestingarfélag sem leggur ríka áherslu á virka
þátttöku í rekstri og stefnumörkun lykileigna  sinna.  Eyrir Invest var stofnað
um mitt ár 2000. 

Athygli fjárfesta er vakin á eftirfarandi

Sumar staðhæfingar í þessari fréttatilkynningu kunna að vera byggðar á mati og
áætlunum stjórnenda félagsins en ekki á staðreyndum sem hægt er að sannreyna
við birtingu hennar. Í eðli sínu fela slíkar staðhæfingar því í sér óvissu. Við
vekjum þess vegna athygli fjárfesta á því að margir þættir geta haft þau áhrif
að rekstrarumhverfi og afkoma verði með öðrum hætti en forsendur gera ráð fyrir
í þessari tilkynningu. Tilkynningin verður ekki endurskoðuð eftir birtingu hvað
þetta varðar.