|
|||
![]() |
|||
2013-05-29 18:15:45 CEST 2013-05-29 18:16:46 CEST REGULATED INFORMATION Lánasjóður sveitarfélaga ohf. - FyrirtækjafréttirLánasjóður sveitarfélaga - Niðurstaða viðbótarútgáfu úr skuldabréfaútboðiLánasjóður sveitarfélaga var með skuldabréfaútboð í flokkum LSS150224 og LSS150434 þann 28. maí 2013. Uppgjör viðskipta fer fram föstudaginn 31. maí 2013. Samkvæmt 1. gr. í skilmálum aðalmiðlarasamnings í tengslum við útgáfu skuldabréfa lánasjóðs sveitarfélaga stendur aðalmiðlurum til boða að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í útboðinu á meðalverði samþykktra tilboða til kl. 12 á næsta virka degi eftir að útboði lýkur. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í réttu hlutfalli við það magn sem þeir hafa keypt í útboðinu. Að þessu sinni nýttu aðalmiðlarar sér kaupréttinn í LSS150434 fyrir ISK 52.000.000. Lánasjóðurinn selur ISK 52.000.000 af eigin bréfum sjóðsins. Selt magn í flokki LSS150434 nemur því að nafnvirði ISK 932.000.000 á ávöxtunarkröfunni 3,00%. Útistandandi fyrir voru ISK 8.211.852.565. Heildarstærð flokksins er nú ISK 9.591.852.565. Nánari upplýsingar veitir: Egill Skúli Þórólfsson Sími: 515 4947 e-mail: egill@lanasjodur.is |
|||
|