2009-03-23 17:10:01 CET

2009-03-23 17:11:04 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
VBS Fjárfestingarbanki hf. - Fyrirtækjafréttir

- VBS fjárfestingarbanki semur við ríkissjóð


VBS fjárfestingarbanki hefur gengið frá samkomulagi við ríkissjóð um lán til 7
ára vegna skuldbindinga bankans við Seðlabanka Íslands. 

Með samningnum er tryggt að ríkissjóður og þar með skattgreiðendur, fái að
fullu greitt skuldbindingar þær sem VBS fjárfestingarbanki tókst á hendur vegna
endurhverfra viðskipta við Seðlabankann.  Auk þessa mun samningurinn tryggja
langtímafjármögnun á meginhluta skulda VBS fjárfestingarbanka, og þar með renna
styrkum stoðum undir framtíð félagsins, hagsmuni viðskiptavina, hluthafa og
starfsfólks. 

Lánasamningurinn inniheldur skilyrði um eiginfjár- og lausafjárstöðu auk
annarra skilyrða og veitir hinu opinbera ríkari aðgengi að upplýsingum er varða
rekstur og rekstrarhæfi bankans. 

Stefnt er að því að birta endurskoðaðan ársreikning VBS fjárfestingarbanka þann
31.mars næstkomandi. 

Frekari upplýsingar veitir:
Jón Þórisson, forstjóri
Sími:  570-1200
Netfang: jon@vbs.is