|
|||
2011-12-29 11:36:05 CET 2011-12-29 11:37:06 CET REGULATED INFORMATION Reykjavíkurborg - FyrirtækjafréttirÚtgáfuáætlun Reykjavíkurborgar fyrstu sex mánuði ársins 2012Í fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2012 kemur fram að Reykjavíkurborg áætlar lántökur að fjárhæð 6.230 mkr vegna framkvæmda. Stærð skuldabréfaflokksins RVK 09 1 er 14.515 mkr að nafnverði 28 desember 2011. Borgarráð samþykkti á fundi sínum þann 22 desember sl. útgáfuáætlun vegna stækkunar skuldabréfaflokksins RVK 09 1 á tímabilinu janúar-júní 2012. Útboð munu því fara fram í eftirfarandi vikum. Einnig er tilgreind fyrirhuguð lántaka í einstökum útboðum enda áskilin réttur til að hafna öllum tilboðum eða jafnvel taka hærri fjárhæðum sé þess þörf og ásættanleg kjör í boði. mars: vika 12 (21.3.2012), 500 mkr í boði apríl: vika 17 (25.4.2012), 500 mkr í boði maí: vika 21 (23.5.2012), 500 mkr í boði Tilkynnt verður um fyrirkomulag einstakra útboða í fréttakerfi NASDAQ OMX á Íslandi a.m.k 1 virkum degi fyrir útboð. Reykjavíkurborg áskilur sér allan rétt til að víkja frá áætlun þessari og mun þá tilkynna um breytingar þar að lútandi í fréttakerfi NASDAQ OMX á Íslandi Nánari upplýsingar gefur: Birgir Björn Sigurjónsson Fjármálastjóri Reykjavíkurborgar Sími: 411-1111 |
|||
|