|
|||
2013-10-08 17:31:00 CEST 2013-10-08 17:31:00 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirÚtboð ríkisvíxla RIKV 14 0115 og RIKV 14 0415Föstudaginn 11. október kl. 11:00 fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisvíxlum í flokkunum RIKV 14 0115 og RIKV 14 0415 sem eru með gjalddaga 15. janúar og 15. apríl 2014. Lánamál ríkisins áskilja sér rétt til að samþykkja öll tilboð sem berast, að hluta eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa er heimilt að gera tilboð í útboðinu, en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. Greiðslu- og uppgjörsdagur er þriðjudagur 15. október 2013. Sótt verður um að RIKV 14 0415 verði tekinn til viðskipta í NASDAQ OMX á Íslandi miðvikudaginn 16. október 2013. |
|||
|