|
|||
![]() |
|||
2017-08-22 13:59:29 CEST 2017-08-22 13:59:29 CEST REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA Arion Bank hf. - Árshlutareikningur - 6 mán.Árshlutareikningur fagfjárfestasjóðsins Arion Bank Mortgages Institutional Investor Fund (ABMIIF) árið 2017Fagfjárfestasjóðurinn ABMIIF sem er í rekstri Stefnis hf. er ábyrgðaraðili skuldabréfum útgefnum af Arion banka sem tekin voru til viðskipta hjá NASDAQ OMX Iceland hf. árið 2014.
-- Hagnaður varð af rekstri sjóðsins að fjárhæð 595 millj. kr. á tímabilinu samkvæmt rekstrarreikningi og er hagnaðurinn færður til hækkunar á hlutdeildarskírteinum. -- Hrein eign sjóðsins í júnílok 2017 nam 16.702 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi. -- Árshlutareikningurinn var kannaður af Deloitte ehf. í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Það er álit endurskoðanda að árshlutareikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á fyrri helmingi ársins 2017, efnahagi hans 30. júní 2017 og breytingu á hreinni eign sjóðsins á fyrri helmingi ársins 2017, í samræmi við lög um ársreikninga og reglur um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða sem settar eru af Fjármálaeftirlitinu
Hægt verður að nálgast árshlutareikning sjóðsins frá og með deginum í dag á heimasíðu Stefnis hf. www.stefnir.is
Nánari upplýsingar um árshlutareikning ABMIIF veitir Flóki Halldórsson, framkvæmdastjóri Stefnis, í síma 444 7464. |
|||
|