|
|||
![]() |
|||
2017-08-24 16:09:36 CEST 2017-08-24 16:09:36 CEST REGULATED INFORMATION Eik fasteignafélag hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarEik fasteignafélag hf.: Birting uppgjörs 2. ársfjórðungs 2017 - Kynningarfundur 1. septemberEik fasteignafélag hf. mun birta uppgjör 2. ársfjórðungs fyrir árið 2017 eftir lokun markaða fimmtudaginn 31. ágúst 2017. Opinn kynningarfundur verður haldinn föstudaginn 1. september 2017 klukkan 8:30 á Hóteli 1919 í fundarherberginu Goðafoss, Pósthússtræti 2. Boðið verður upp á léttan morgunmat frá kl. 8:00. Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri Eikar, mun kynna uppgjörið og svara spurningum að lokinni kynningu ásamt Lýð H. Gunnarssyni, framkvæmdastjóra fjármálasviðs. Nánari upplýsingar veitir Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, lydur@eik.is s. 590-2200 / 820-8980. [] |
|||
|