2007-12-31 10:22:50 CET

2007-12-31 10:22:50 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Icebank - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendum

- Nýr bankastjóri Icebank


Samkomulag hefur orðið um að Finnur Sveinbjörnsson, bankastjóri Icebank, láti
af störfum hjá bankanum. Stjórn Icebank hefur ráðið Agnar Hansson sem nýjan
bankastjóra. Agnar hefur verið framkvæmdastjóri fjárstýringar Icebank sl. tvö
ár og hefur rúmlega tíu ára starfsreynslu úr fjármálageiranum. Hann starfaði
m.a. að uppbyggingu  Fjárfestingarbanka atvinnulífsins (FBA) og var fyrsti
deildarforseti viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík. Agnar er fæddur 1965 og
er með meistarapróf í raunvísindum og hagfræði frá Háskólanum í Árósum. 

Finnur hefur stýrt Icebank frá árinu 2002 og leitt bankann í gegnum mikið
umbreytingaferli á undanförnum misserum. Umsvif bankans hafa vaxið verulega
undir stjórn Finns. Í árslok 2001 námu heildareignir hans 54 milljörðum króna
en í árslok 2007 er áætlað að heildareignir verði liðlega 200 milljarðar króna.
 Ennfremur hefur hlutverk bankans sem þjónustubanki sparisjóðanna verið
útvíkkað, honum fengin ný verkefni m.a. á sviði fjárfestingarbankastarfsemi og
fyrirtækjaráðgjafar. Þá hefur eignarhald bankans einnig breyst á síðustu vikum
eins og áður hefur verið greint frá. 

Á þessum tímamótum þakkar bankaráð Icebank Finni fyrir vel unnin störf og óskar
honum velfarnaðar á nýjum vettvangi. 


Nánari upplýsingar veitir:
Geirmundur Kristinsson, stjórnarformaður Icebank, í síma  421 6600.