2016-02-29 10:26:41 CET

2016-02-29 10:26:41 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Tryggingamiðstöðin hf. - Breytingar á eigin hlutum félags

Reglubundin tilkynning um kaup TM á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun.


Í 8. viku 2016 keypti Tryggingamiðstöðin hf. (TM) 1.315.567 eigin hluti fyrir
30,1 m.kr. eins og hér segir: 

Dagsetnin  Tími     Keyptir    Viðskiptave   Kaupverð   Hlutir í eigu TM eftir  
g                    hlutir         rð                         viðskipti        
--------------------------------------------------------------------------------
23.2.2016  13:23    410.000       22,75     9.327.500         32.593.497        
--------------------------------------------------------------------------------
23.2.2016  15:08     59.553       22,75     1.354.831         32.653.050        
--------------------------------------------------------------------------------
24.2.2016  10:26     19.900       22,75      452.725          32.672.950        
--------------------------------------------------------------------------------
24.2.2016  14:06     15.000       22,75       341.250         32.687.950        
--------------------------------------------------------------------------------
24.2.2016  14:45    200.000       22,75     4.550.000         32.887.950        
--------------------------------------------------------------------------------
25.2.2016  11:36    611.114       23,05     14.086.17         33.499.064        
                                                8                               
--------------------------------------------------------------------------------
Samtals            1.315.567                30.112.48                           
                                                3                               
--------------------------------------------------------------------------------



Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun
félagsins sem var hrint í framkvæmd 1. febrúar 2016, sbr. og tilkynningu til
Kauphallar þann dag. 

TM hefur nú keypt samtals 6.798.227 hluti í félaginu sem samsvarar 45,3% af
þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð
hinna keyptu hluta nemur samtals 151,4 milljónum króna. TM á nú samtals 4,5% af
heildarhlutafé félagsins. 

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 15.000.000 hlutir og
fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en 300 milljónir króna. Framkvæmd
endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins þann 17. mars 2016 ef
kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður. Endurkaupáætlunin er
framkvæmd í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og II. kafla viðauka
reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik. 



Nánari upplýsingar veitir

Sigurður Viðarsson, forstjóri

s: 515-2609

sigurdur@tm.is