|
|||
2012-08-23 17:46:30 CEST 2012-08-23 17:47:31 CEST REGULATED INFORMATION Orkuveita Reykjavíkur - ÁrsreikningurTraustur rekstur OrkuveitunnarReykjavík, 2012-08-23 17:46 CEST (GLOBE NEWSWIRE) -- Árshlutauppgjör Orkuveitu Reykjavíkur vegna fyrri hluta ársins 2012 staðfestir þá góðu afkomu rekstursins, sem sást á fyrstu mánuðum ársins. Rekstrarhagnaður (EBIT) nam 8,1 milljarði króna. Það er um 1,8 milljörðum króna betri afkoma en á fyrri hluta ársins 2011. Aðhald á öllum sviðum rekstursins og aukning tekna skýra þetta. Tekjur á tímabilinu jukust um 16% milli ára en gjöldin um 6%. Afkoman er í samræmi við aðgerðaáætlun Orkuveitunnar og eigenda - Planið. Þróun gengis og álverðs á fyrri helmingi ársins 2012 var fyrirtækinu áfram óhagstæð. Reiknuð áhrif þessara og annarra óinnleystra fjármagnsliða á heildarafkomuna voru neikvæð um 8,5 milljarða og heildarniðurstaða fyrstu sex mánaða ársins því neikvæð um 0,9 milljarða króna. Frá júnílokum, sem uppgjörið miðast við, hefur gengisþróun verið hagstæðari en álverð áfram lágt. Þessir tveir þættir eru, ásamt fjármagnskostnaði, helstu óvissuþættir reksturs Orkuveitunnar. Áhrif styrkingar krónunnar frá júnílokum til dagsins í dag og lækkunar álverðs á sama tímabili hefðu samanlagt um átta milljarða króna jákvæð áhrif á rekstrarafkomuna frá uppgjörsdegi, að öðru óbreyttu. Árshlutareikningur samstæðu Orkuveitu Reykjavíkur H1 2012 var samþykktur af stjórn fyrirtækisins í dag. Reikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS). Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitunnar: Uppstokkunin í rekstri Orkuveitunnar hefur nú skilað sér í góðri afkomu eins og að var stefnt með Planinu. Traustur rekstur hefur nú gert okkur kleift að semja við lánveitendur um endurröðun gjalddaga og létta þannig greiðslubyrði Orkuveitunnar næstu árin. Nýlegir áhættuvarnarsamningar Orkuveitunnar minnka áhrif þeirra ytri óvissuþátta, sem við höfum ekki stjórn á. Óhagstæð þróun þeirra getur valdið rekstrinum þungu tjóni og fyrir því þurfum við að verja okkur að því marki sem skynsamlegt er. Ég fagna því sérstaklega að eigendur Orkuveitunnar - Reykjavík, Akranes og Borgarbyggð - hafa samþykkt nýja eigendastefnu fyrir starfsemina. Hún er mjög í þeim anda sem við höfum unnið eftir innan fyrirtækisins; skýr hlutverk, skýr markmið og skýr ábyrgð á því að þeim sé náð. Rekstraryfirlit stjórnenda Allar fjárhæðir eru í milljónum króna á verðlagi hvers árs. Rekstur á fyrri helmingi árs 2008 2009 2010 2011 2012 -------------------------------------------------------------------------------- Rekstrartekjur 11.369 11.925 13.561 16.676 19.287 -------------------------------------------------------------------------------- Rekstrarkostnaður (5.553) (6.233) (6.505) (6.164) (6.560) -------------------------------------------------------------------------------- EBITDA 5.816 5.692 7.056 10.512 12.727 -------------------------------------------------------------------------------- Afskriftir (3.308) (4.702) (3.902) (4.136) (4.585) -------------------------------------------------------------------------------- Rekstrarhagnaður EBIT 2.508 990 3.154 6.376 8.142 -------------------------------------------------------------------------------- Innleystar fjármunatekjur og (2.157) (3.295) (1.218) (1.418) (1.629) (fjármagnsgjöld) -------------------------------------------------------------------------------- Afkoma fyrir óinnleysta 351 (2.304) 1.936 4.957 6.513 fjármagnsliði -------------------------------------------------------------------------------- Óinnleystir fjármagnsliðir (20.017) (10.805) 4.155 (9.741) (8.455) -------------------------------------------------------------------------------- Afkoma fyrir tekjuskatt skv. (19.666) (13.109) 6.092 (4.784) (1.941) árshlutareikningi -------------------------------------------------------------------------------- Tekjuskattur 3.260 2.494 (974) 962 1.017 -------------------------------------------------------------------------------- Afkoma tímabilsins (16.406) (10.615) 5.118 (3.822) (924) -------------------------------------------------------------------------------- Tengiliður: Bjarni Bjarnason forstjóri 516 7707 |
|||
|