|
|||
2012-11-12 09:47:53 CET 2012-11-12 09:48:54 CET REGULATED INFORMATION Reykjaneshöfn - FyrirtækjafréttirFjárfestatilkynning, horfur í rekstriÞann 7. september sl. tilkynnti Reykjaneshöfn um fyrirhuguð 700 milljóna króna endurkaup skráðra skuldabréfa og greiðslur inn á lánssamninga. Í tengslum við þessa fyrirhuguðu ráðstöfun fjármuna og í samhengi við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2013 hefur stofnunin látið vinna greiðsluáætlun fram til ársins 2015, þar sem fjárhagsleg áhrif álvers og kísilvers eru aðgreind frá öðrum rekstri og fjárfestingum sem hér segir: Fjárhæðir í mkr. 2012 2013 2014 2015 Fjárflæði fyrir þjónustu skulda Regluleg starfssemi 12 11 18 25 Lóðasala 3 67 200 400 Álver 0 125 -80 -170 Kísilver 100 -25 60 90 Veltufjárbinding 20 30 54 11 Víkjandi lán frá Rne 900 50 50 50 Samtals 1.034 258 302 406 Þjónusta skulda RNH 27 + lánasamningar -115 -159 -204 -204 RNH 16 + lánasamningar -700 -37 -100 -100 Lánasjóður sveitarfélaga -119 -66 -62 -57 Hækkun (lækkun) á handbæru fé 100 -5 -63 45 Handbært fé í lok árs 102 97 34 78 Vakin er athygli á því að ofangreind áætlun gerir ráð fyrir því að allri fjárhæðinni verði varið til endurkaupa á skuldabréfum í flokknum RNH 16 1015 og greiðslu inn á lánssamninga með sambærilega skilmála. Tilboð Reykjaneshafnar um endurkaup og innágreiðslu er hinsvegar ekki takmarkað við þessa fjármálagerninga og gildir jafnt um flokkinn RNH 27 0415 og sambærilega lánssamninga. Eigendum skuldabréfa í þessum flokkum og sambærilegra lánssamninga er boðið að selja eða fá greitt inn á lánssamningana í hlutfalli við bókfærða stöðu með áföllnum vöxtum og verðbótum allt að 16,5%. Kaup á skuldabréfum miða við 6% kröfu. Ef einhverjir eigendur nýta ekki rétt sinn samkvæmt þessu tilboði að fullu stendur öðrum til boða að selja fyrir þá fjárhæð sem út af stendur og skiptist þá sú fjárhæð sem til ráðstöfunar verður á milli áhugasamra í hlutfalli við fjölda þeirra. Uppgjör vegna endurkaupa mun fara fram þann 15. nóvember 2012. Reykjaneshöfn hefur tilnefnt Centra Fyrirtækjaráðgjöf hf. sem umboðsmann sinn til að hafa milligöngu um að handhafar skuldabréfa geti neytt fjárhagslegra réttinda sinna. Fulltrúi Centra er Sigurður Harðarson, sími 450 1507, tölvupóstfang sig.hardarson@centra.is. Skuldabréfaeigendum og lánveitendum sem hafa áhuga á að notfæra sér þetta tilboð er bent á að lýsa áhuga sínum við Centra og tilgreina hvaða fjárhæð þeir hafa áhuga á að selja fyrir eða fá greidda inn á lánssamninga. Nánari upplýsingar veitir Pétur Jóhannsson, framkvæmdastjóri Atvinnu- og hafnarsviðs Reykjanesbæjar í síma 420-3222. |
|||
|