|
|||
2012-10-16 23:29:30 CEST 2012-10-16 23:30:32 CEST REGULATED INFORMATION Reginn hf. - FyrirtækjafréttirKaup Regins hf. á fasteigninni Hafnarstræti 83-89 sem hýsir Hótel KEA lokiðÍ tilkynningu Regins hf. þann 4. september síðastliðinn kom fram að Reginn hf. hefði gert samkomulag um kaup á fasteigninni sem hýsir Hótel KEA þ.e Hafnarstræti 83-89 á Akureyri með fyrirvara um niðurstöðu áreiðanleikakönnunar. Sú áreiðanleikakönnun hefur nú farið fram án athugasemda. Kaupsamningur milli Regins hf. og Krypton ehf. um fasteignina var undirritaður í dag 16. október. Jafnframt var undirritaður 14 ára leigusamningur við Keahótel ehf. Kaupverðið er trúnaðarmál en áhrif kaupanna er aukning á EBITDU félagsins yfir 5% en áhrif fjárfestingarinnar munu verða lítil á stjórnunarkostnað félagsins. Hótel Kea fellur vel að fjárfestingarstefnu félagsins en eins og kom fram í skráningarlýsingu félagsins þá stefnir Reginn hf. á að auka breiddina í tegundum atvinnuhúsnæðis og hluti af því er að fjárfesta í verkefnum tengdum ferðamannaiðnaði. Hótel Kea er eitt af þekktustu kennileitum Akureyrar. Hótel Kea er eina fjögurra stjörnu hótelið á Akureyri og er staðsett í hjarta bæjarins þar sem stutt er í alla þjónustu, verslanir, söfn og veitingastaði. Hótelið býður upp á velbúin herbergi, veitingastað, bar, ráðstefnu- og fundasali. Kaupin hafa nú þegar verið fjármögnuð. Nánari upplýsingar veitir: Helgi S. Gunnarsson Forstjóri Regins hf. Sími: 512 8900 / 899 6262 |
|||
|