2016-11-07 17:28:05 CET

2016-11-07 17:28:05 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Hagar hf. - Fyrirtækjafréttir

Hagar hf. hafa sett fram skuldbindandi kauptilboð í Lyfju hf.


Hagar hf. hafa sett fram skuldbindandi kauptilboð í alla hluti í Lyfju hf., en
Lyfja hf. er í opnu söluferli sem Fyrirtækjaráðgjöf Virðingar hf. annast fyrir
hönd seljanda. Seljandi Lyfju hf. er Ríkissjóður Íslands en Lindarhvoll ehf.
fer með söluna fyrir hönd seljanda á grundvelli laga um Seðlabanka Íslands og
samnings við fjármála- og efnahagsráðuneytið. Samkvæmt söluferlinu stóð
fjárfestum til boða að skila inn óskuldbindandi tilboðum í allt hlutafé í Lyfju
þann 5. október 2016. Tilteknir fjárfestar voru teknir áfram í annan hluta
söluferlis og rann skilafrestur skuldbindandi tilboða út kl. 16 í dag,
mánudaginn 7. nóvember 2016. Eftir að skuldbindandi tilboð berast í félagið
ákveður seljandi hvort halda eigi áfram með söluferlið, með einum eða fleiri
aðilum. 

Lyfja hf. samanstendur af móðurfélaginu Lyfju hf. ásamt dótturfélögunum Heilsu
ehf. og Mengi ehf. Lyfja rekur samtals 39 apótek. 

Hagar hafa enn sem komið er takmarkaðan aðgang að upplýsingum um hið selda.
Tilboðið er með fyrirvara um áreiðanleikakönnun og niðurstöðu hennar og
samþykki Samkeppniseftirlitsins. Gangi viðskiptin eftir má gera ráð fyrir að
gengið verði frá viðskiptunum fyrir mitt ár 2017. 



Nánari upplýsingar veitir Aðalheiður Fritzdóttir í netfangi heida@hagar.is