|
|||
2011-10-21 13:45:50 CEST 2011-10-21 13:46:52 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirNiðurstaða í útboði óverðtryggða ríkisbréfa RIKB 22 1026Útboð á óverðtryggðum ríkisbréfum, RIKB 22 1026 fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar: RIKB 22 1026: Alls bárust 58 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 15.956 m.kr. að nafnverði. 43 tilboðum var tekið fyrir 12.461 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 99,263 (7,35% ávöxtunarkröfu). Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 25. október. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi viðskipti er 26. október 2011. |
|||
|