2015-04-22 11:01:00 CEST

2015-04-22 11:01:00 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Vátryggingafélag Íslands hf. - Fyrirtækjafréttir

VÍS: Stjórn VÍS afsalar sér breytingu stjórnarlauna


Stjórnarmenn VÍS hafa tekið ákvörðun um að afsala sér hækkun á stjórnarlaunum
sem var samþykkt samhljóða af hluthöfum félagsins á aðalfundi þann 12. mars sl.
Eftir þessa ákvörðun allra stjórnarmanna verða stjórnarlaunin 200 þúsund krónur
á mánuði til stjórnarmanna og 400 þúsund á mánuði til formanns stjórnar. 

Á aðalfundinum var fyrirkomulagi stjórnarlaunagreiðslna breytt þannig að hætt
var að greiða fyrir hvern aukafund til viðbótar fastri mánaðarlegri þóknun
samhliða því að fjárhæð fastrar þóknunar var hækkuð. Var breytingunni ætlað að
auka gagnsæi um fyrirkomulag stjórnarlaunanna. Afsal stjórnarmanna á hækkun
launanna sem ákveðin var á aðalfundinum mun því leiða til umtalsverðrar
lækkunar stjórnarlauna frá fyrra starfsári þar sem gamla fyrirkomulaginu um
greiðslur fyrir setna aukafundi hefur verið hætt. 

Það er von stjórnar VÍS að afsal hækkunar stjórnarlauna verði þáttur í að
stuðla að sátt á vinnumarkaði.