2016-08-29 11:00:01 CEST

2016-08-29 11:00:01 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Sjóvá-Almennar tryggingar hf - Breytingar á eigin hlutum félags

Reglubundin tilkynning Sjóvá um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í viku 34 keypti Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 905.522 eigin hluti að
kaupverði 10.540.663 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir: 

Dagsetning      Tími  Keyptir hlutir  Viðskiptaverð (gengi)  Kaupverð (kr.)
---------------------------------------------------------------------------
---------------------------------------------------------------------------
22.08.2016  11:08:50         300.000                  11,50       3.450.000
26.08.2016  09:41:19         605.522                  11,71       7.090.663
---------------------------------------------------------------------------
   Samtals                   905.522                             10.540.663
---------------------------------------------------------------------------



Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun
félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 9. júní 2016. 

Sjóvá átti 18.311.458 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum
19.216.980 eigin hluti eða sem nemur 1,23% af útgefnum hlutum í félaginu. 

Sjóvá hefur keypt samtals 9.301.207 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem
nemur 0,60% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra
107.072.601 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 25.000.000
hluta eða sem nemur 1,6% af útgefnum hlutum í félaginu, en þó ekki meira en
300.000.000 kr. að kaupverði. Endurkaupaáætlunin er í gildi til 30. september
2016 nema ef kaupum samkvæmt henni verður lokið áður. 

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um
hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og
markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í
endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“ 



Nánari upplýsingar veitir:

Hermann Björnsson, forstjóri s. 440-2000