2009-04-24 13:28:00 CEST

2009-04-24 13:29:06 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Teymi hf. - Fyrirtækjafréttir

Innköllun umsjónarmanns með nauðasamningsumleitunum


Innköllun

Með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur uppkveðnum 21. apríl 2009 var Teymi hf. kt.
571106-0940, Suðurlandsbraut 18, Reykjavík, veitt heimild til að leita
nauðasamnings. 

Hér með er skorað á alla þá sem telja sig eiga samningskröfu skv. 1. mgr. 29.
gr. laga nr. 21/1991 á hendur félaginu, að lýsa þeim fyrir undirrituðum
umsjónarmanni með nauðasamningsumleitunum, innan fjögurra vikna frá birtingu
þessarar innköllunar. Kröfulýsingar skulu sendar á nafn umsjónarmanns að
Lágmúla 7, 108 Reykjavík. 

Fundur verður haldinn með þeim lánardrottnum, sem eiga atkvæðisrétt um
samningsfrumvarp skuldarans, á skrifstofu undirritaðs að Lágmúla 7, Reykjavík,
fimmtudaginn 4. Júní 2009 kl. 14:00, til þess að greiða þar atkvæði um
frumvarpið. 

Reykjavík, 21. apríl 2009

Brynjar Níelsson, hrl.