2013-04-04 18:05:00 CEST

2013-04-04 18:06:02 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Fjarðabyggð - Ársreikningur

Ársreikningur Fjarðabyggðar 2012 tekinn til fyrri umræðu í bæjarstjórn


Fimmtudaginn 4. apríl 2013 fer fram fyrri umræða í bæjarstjórn Fjarðabyggðar um
ársreikning sveitarfélagsins fyrir árið 2012. Ársreikningurinn hefur verið
áritaður af bæjarráði og bæjarstjóra. Samkvæmt sveitarstjórnarlögum skal fjalla
um ársreikninginn á tveimur fundum í bæjarstjórn. Áformað er að
ársreikningurinn verði afgreiddur við síðari umræðu í bæjarstjórn þann 18.
apríl næstkomandi. 

Rekstrarniðurstaða, án afskrifta og fjármagnsliða, hjá samstæðu A og B hluta
var jákvæð sem nam 1.325 millj. kr. á árinu. Þar af var rekstrarniðurstaða í A
hluta 498 millj. kr. EBITDA framlegð nam 27% hjá samstæðu og 14,1% í A hluta. 

Rekstrarniðurstaða ársins hjá samstæðu A og B hluta var jákvæð um 444 millj.
kr. og rekstrarniðurstaða A hluta jákvæð um 9 millj. kr. 

Rekstrartekjur, samstæðu A og B hluta sveitarfélagsins, námu samtals 4.899
millj. kr. en þar af námu rekstrartekjur A hluta 3.539 millj. kr. Til
samanburðar voru rekstrartekjur samstæðu 4.618 millj. kr. árið 2011. Aukning í
rekstrartekjum nemur því 6,1% á milli ára. Aukningin er 6,9% í útsvari og
fasteignasköttum, lækkun um 10% í framlögum jöfnunarsjóðs og aukning um 8,7% í
öðrum tekjum. 

Rekstrargjöld, að meðtöldum afskriftum, í samstæðu A og B hluta námu 3.961
millj. kr. og þar af voru rekstrargjöld A hluta 3.256 millj. kr. Rekstrargjöld
samstæðu hækka um 2,5% á milli ára og um 3,3% í A hluta. 

Hækkun launa og launatengdra gjalda í samstæðu nam 3,7% eða um 76 millj. kr.
Lífeyrisskuldbindingar hækkuðu um 155 millj. kr. Að teknu tilliti til
lífeyrisskuldbindinga og almennra kjarabreytinga lækkar launakostnaður á milli
ára. Annar rekstarkostnaður samstæðu hækkar um 1,1% á milli ára. Í A hluta nam
hækkun launa og launatengdra gjalda 4,1% og annars rekstrarkostnaðar um 3,3%. 

Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur, í samstæðu A og B hluta, námu 482 millj.
kr. samanborið við 641 millj. kr. árið 2011. Áhrif verðlagsþróunar til hækkunar
á höfuðstól verðtryggðra lána nam 217 millj. kr. á árinu og áhrif vegna
gengisþróunar til hækkunar á höfuðstól gengistryggðra lána 65 millj. kr. Við
uppgjör vegna endurskiplagningar Eignarhaldsfélagsins Fasteignar voru færðar
meðal fjármagnsliða áhrif af endurskoðun leigusamninga við félagið að upphæð
233 millj. kr. sem tekjur. 

Fjárfesting í samstæðu A og B hluta, nam samtals 506 millj. kr. á árinu 2012
samanborið við 270 millj. kr. árið áður, seldar eignir á árinu námu 17 millj.
kr. Afborganir langtímalána námu 477 millj. kr. á árinu og engin ný langtímalán
voru tekin á árinu. Handbært fé hækkaði um 70 millj. kr. á árinu og nam 916
millj. kr. í árslok 2012. 



Eignir sveitarfélagsins voru í lok árs 2012 samtals að fjárhæð 11.281 millj.
kr., þar af 9.723 millj. kr. fastafjármunir. Á meðal fastafjármuna eru færðar
leigðar eignir samtals að fjárhæð 1.083 millj. kr. Langtímaskuldir við
lánastofnanir eru 5.871 millj. kr., leiguskuldir 1.839 millj. kr.,
skammtímaskuldir 1.360 millj. kr. og lífeyrisskuldbinding 1.682 millj. kr.
Skuldir samstæðunnar lækka milli ára um 275 millj. kr. 

Eigið fé samstæðu var 530 millj. kr. í árslok 2012 samanborið við 11 millj. kr.
í árslok 2011. Breyting á eigin fé skýrist af rekstrarniðurstöðu ársins og
endurmati lóða og lendna að fjárhæð 74 millj. kr. 


Nánari upplýsingar veita:
Páll Björgvin Guðmundson bæjarstjóri og
Snorri Styrkársson fjármálastjóri í síma 470-9000.