2014-04-30 16:50:19 CEST

2014-04-30 16:51:20 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Tryggingamiðstöðin hf. - Fyrirtækjafréttir

Tryggingamiðstöðin hf. - Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar.


Á aðalfundi Tryggingamiðstöðvarinnar hf. þann 20. mars 2014 var samþykkt að
veita stjórn heimild til að kaupa eigin hluti með framkvæmd endurkaupaáætlunar,
sbr. II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005, um innherjaupplýsingar og
markaðssvik, en tilgangur áætlunarinnar er að lækka hlutafé félagsins.
Endurkaupaáætlunin verður framkvæmd af verðbréfafyritækinu Arctica Finance hf.
sem tekur þar með allar viðskiptaákvarðanir er varða kaup á hlutum og
tímasetningu kaupanna óháð félaginu. Fjöldi hluta sem keyptur skal samkvæmt
endurkaupaáætluninni verður að hámarki 21.000.000 hlutir, en það jafngildir
2,8% af útgefnu hlutafé félagsins, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði
aldrei meiri en 600 milljónir króna. Kaupin verða framkvæmd í áföngum með þeim
skilyrðum að kaup hvers dags mega að hámarki vera 25% af meðaltali daglegra
viðskipta með hlutabréf félagsins í Kauphöll Íslands í mars 2014 en það
jafngildir að dagleg kaup megi að hámarki vera 1.399.360 hlutir. Endurgjald
fyrir hvern hlut skal vera að hámarki síðasta skráða dagslokagengi áður en kaup
fara fram, að teknu tilliti til takmarkana samkvæmt 1. mgr. 5. gr. viðauka við
framangreinda reglugerð. Viðskipti félagsins með eigin hluti í samræmi við
endurkaupaáætlunina skulu tilkynnt eigi síðar en við lok sjöunda viðskiptadags
eftir að viðskiptin fara fram. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur þegar
aðalfundur félagsins 2015 verður haldinn ef kaupum samkvæmt áætluninni er ekki
lokið áður.  Henni lýkur þó í síðasta lagi 31. mars 2015. 

Reykjavík,  30. apríl 2014.

Tryggingamiðstöðin hf.