2014-09-08 11:16:30 CEST

2014-09-08 11:17:31 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Tryggingamiðstöðin hf. - Breytingar á eigin hlutum félags

Reglubundin tilkynning um kaup TM á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í 36. viku 2014 keypti Tryggingamiðstöðin hf. (TM) 900.000 eigin hluti fyrir
22,1 m.kr. eins og hér segir: 

Dagsetnin  Tími     Keyptir    Viðskiptave   Kaupverð   Hlutir í eigu TM eftir  
g                    hlutir         rð                         viðskipti        
--------------------------------------------------------------------------------
 3.9.2014  15:22    400.000       24,60     9.840.000         10.400.000        
--------------------------------------------------------------------------------
 4.9.2014  13:06    500.000       24,60     12.300.00         10.900.000        
                                                0                               
--------------------------------------------------------------------------------
Samtals             900.000                 22.140.00                           
                                                0                               
--------------------------------------------------------------------------------



Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun
félagsins sem var hrint í framkvæmd 2. maí 2014, sbr. og tilkynningu til
Kauphallar 30. apríl 2014. 

TM hefur nú keypt samtals 10.900.000 hluti í félaginu sem samsvarar 51,9% af
þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð
hinna keyptu hluta nemur samtals 282,5 milljónum króna. TM á nú samtals 1,43%
af heildarhlutafé félagsins. 

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 21.000.000 hlutir og
fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en 600 milljónir króna. Framkvæmd
endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2015 en þó aldrei síðar en
31. mars 2015 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður.
Endurkaupáætlunin er framkvæmd í samræmi við II. kafla viðauka reglugerðar nr.
630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik. 



Nánari upplýsingar veitir

Sigurður Viðarsson, forstjóri

s: 515-2609

sigurdur@tm.is