2009-11-09 11:10:04 CET

2009-11-09 11:11:04 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Hitaveita Suðurnesja - Fyrirtækjafréttir

- Viðræður við lánveitendur


Um síðustu áramót varð ljóst að HS Orka hafði brotið lánsfjárkvaðir helstu
lánasamninga vegna mikils falls íslensku krónunnar.  Þessa var getið
sérstaklega í ársreikningi félagsins og í áritun endurskoðenda.  Nú hefur
félagið um nokkurt skeið verið í viðræðum við lánveitendur sína þar sem unnið
er að því að félaginu verði veittar undanþágur frá fyrrgreindum lánsfjárkvöðum
eða þeim breytt þannig að félagið geti staðið við þær.  Þessar viðræður eru nú
á lokastigi en hafa ekki leitt til samkomulags ennþá, líklegt er að það muni
gerast bráðlega og mun félagið senda frá sér tilkynningu þess efnis þegar
samkomulag hefur náðst.