2016-02-05 01:02:24 CET

2016-02-05 01:02:24 CET


REGLERAD INFORMATION

Isländska
Reitir fasteignafélag hf. - Fyrirtækjafréttir

REITIR: Útboð á skuldabréfum 10. febrúar


Reitir fasteignafélag hf. efnir til útboðs á skuldabréfum miðvikudaginn 10.
febrúar næstkomandi. Boðin verða til sölu skuldabréf í flokkunum REITIR151244
og REITIR151124 sem báðir eru verðtryggðir með jöfnum greiðslum og veðtryggðir
með fyrirliggjandi almennu tryggingarfyrirkomulagi félagsins. 

Fjárfestingabankasvið Arion banka hf. hefur umsjón með útboðinu. Heildarstærð
útboðsins getur verið allt að 6,2 milljarðar kr. Útboðið verður með hollenskri
aðferð, þ.e. öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á hæstu ávöxtunarkröfu sem
tekið er. Félagið áskilur sér rétt til þess að taka hvaða tilboði sem er eða
hafna þeim öllum. 

Útboðið er lokað og undanþegið gerð lýsingar, sbr. 1. mgr., 1. tl. a og b 50.
greinar laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti. Grunnlýsingu, drög að
lokaskilmálum og önnur skjöl er varða útgáfurnar eru birt á vefsíðu félagsins
reitir.is/fjarfestar. 

Nánari upplýsingar veitir:
Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, á netfanginu einar@reitir.is eða í síma 669
4416.