2016-02-05 16:06:02 CET

2016-02-05 16:06:02 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reykjanesbær - Fyrirtækjafréttir

Reykjanesbær - Fjármál Reykjanesbæjar


Vísað er til tilkynningar Reykjanesbæjar frá 4. febrúar 2016 þar sem fram kom
að Reykjanesbær hafi veitt stærsta kröfuhafa Reykjanesbæjar, kröfuhöfum
Eignarhaldsfélagsins Fasteignar ehf., Glitni HoldCo ehf. f.h. Ríkissjóðs
Íslands, Landsbankanum hf. og Íslandsbanka hf. frest til föstudagsins 5.
febrúar til þess að bregðast við tillögu Reykjanesbæjar um afmörkun á
skuldavanda sveitarfélagsins. Viðræður við kröfuhafa Eignarhaldsfélagsins
Fasteignar ehf. hafa staðið yfir frá því í marsmánuði 2015 þegar tilkynnt var
að Reykjanesbær hefði hafið viðræður um fjárhagslega endurskipulagningu
bæjarins. 

Viðræður við kröfuhafa Eignarhaldsfélagsins Fasteignar ehf. hafa skilað árangri
og hafa aðilar sammælst um umfang skuldavanda sveitarfélagsins. Í kjölfarið mun
vinna við fjárhagslega endurskipulagningu Reykjanesbæjar og stofnanna þess
halda áfram. Rætt verður við aðra kröfuhafa bæjarfélagsins og stofnana þess á
grundvelli viðræðna við kröfuhafa Eignarhaldsfélagsins Fasteignar ehf. Kapp
verður lagt á að ljúka þeim eins fljótt og auðið er. 

„Viðræðum síðustu daga hefur miðað í rétta átt og höfum við ákveðið að halda
þeim áfram. Því verður ekki leitað eftir því, að svo komnu máli, að Reykjanesbæ
verði skipuð fjárhagsstjórn" segir Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri. 

Nánari upplýsingar veitir Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri.