2015-08-11 13:11:43 CEST

2015-08-11 13:12:44 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Farice ehf. - Ársreikningur

Rekstur Farice batnar fyrri hluta árs 2015 en fjármagnskostnaður eykst


Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITA) jókst um 17,1% frá
sama tíma á fyrra ári og nam 4,3 milljónum evra. Heildartekjur námu 7,4
milljónum evra og jukust um 13,3% frá fyrra ári aðallega vegna viðskipta
tengdra gagnaverum. Heildarkostnaður jókst um 8,5%. Eiginfjárhlutfall var 42,4%
30. júní s.l. 



Fjármagnskostnaður var 3,9 milljónir evra, þar af er 1,9 milljón evra reiknaður
gengismunur vegna styrkingar íslensku krónunnar en helsta lán félagsins er í
íslenskum krónum. Afskriftir námu 3,7 milljónum evra og tap félagsins er því
3,3 milljónir evra. 



Frekari upplýsingar:

Ómar Benediktsson 585 9701