2009-06-15 15:39:18 CEST

2009-06-15 15:40:30 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Landic Property hf. - Fyrirtækjafréttir

Þrjú dönsk dótturfélög Landic Property hf. leggja fram beiðni um gjaldþrotaskipti


Stjórnir þriggja danskra dótturfélaga Landic Property hf., Keops Development
A/S, Landic Property A/S og Landic Investment A/S, hafa í dag lagt fram beiðni
um gjaldþrotaskipti hjá dómstólum í Kaupmannahöfn. Starfsemi þeirra félaga sem
eiga og reka fasteignasöfn á Íslandi, Svíþjóð og í Danmörku er óbreytt og
leigutakar félagsins verða ekki fyrir áhrifum. Fjárhagsleg endurskipulagning
starfsemi Landic Property á Íslandi heldur áfram skv. áætlun. 

Síðastliðna tvo mánuði hefur verið unnið að frágangi á sölu fjölda erlendra
dótturfélaga Landic Property, sem tilkynnt var þann 16. apríl sl. Sala
fasteignasafns Landic Property í Finnlandi er frágengin, og áfram verður unnið
að sölu á erlendu fasteignasafni Landic Property, að undanskildum ofangreindum
þremur félögum, þar sem endurskipulagning og sala þeirra félaga gekk ekki
eftir. 

Fasteignarekstur Landic Property á Íslandi gengur hins vegar samkvæmt áætlun og
fjárhagsleg endurskipulagning móðurfélagsins, Landic Property hf., sem unnin er
í nánu samráði við helstu lánardrottna, miðar vel áfram. Eins og áður hefur
komið fram er eigið fé Landic Property hf. neikvætt og miða áætlanir um
endurskipulagningu félagsins að því  að kröfuhafar eignist allt hlutafé í
félaginu. 

Viðar Þorkelsson, forstjóri Landic Property:
„Það eru vissulega vonbrigði að ekki hafi tekist að bjarga þessum dönsku
dótturfélögum frá gjaldþroti. Söluferli annarra erlendra eigna Landic Property
heldur hins vegar áfram, sem og fjárhagsleg endurskipulagning móðurfélagsins í
samstarfi við lánardrottna. Landic Property mun í framtíðinni einbeita sér að
rekstri fasteigna á Íslandi þar sem dótturfélag þess Landic Ísland er stærsta
fasteignafélag landsins, með yfir 120 fasteignir sem samtals eru um 400 þúsund
fermetrar.  Sá rekstur gengur vel og á því munum við byggja”. 

Gjaldþrot dönsku dótturfélaganna þriggja hefur ekki áhrif á eftirtalin félög:
Landic Property Denmark A/S (áður Atlas), Landic Property Denmark II A/S
(Magasin/Illum fasteignirnar) auk dótturfélaga, Landic Property Bonds I A/S (
SAS-portfolio), Landic Property Bonds VI (Sweden) A/S, Landic Property Bonds
VII (Stockholm) A/S, Landic Property Bonds VIII (Sverige II) A/S,Landic
InvestorService A/S,  K/S Næstved kaserne, K/S Hillerød Port og
Udviklingsselskabet Light house,Landic Ísland ehf., Langastétt ehf., Landsafl
ehf., Landic Property Ísland ehf., Austurstræti 14 ehf., FS6 ehf. og Líf
fasteignir ehf. 

Frekari upplýsingar veitir:
Viðar Þorkelsson
forstjóri Landic Property hf.
Sími 669 4444
E-mail: vth@landicproperty.com