2009-11-30 23:00:00 CET

2009-11-30 23:02:07 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Össur hf. - Heildarfjöldi atkvæða og heildarfjöldi hluta

Óveruleg hlutafjáraukning



Fréttatilkynning frá Össuri hf
                             Reykjavik, 30. nóvember 2009, GMT 22:00


                      Óveruleg hlutafjáraukning


Stjórn Össurar hf. (Össur) hefur í  dag tekið ákvörðun um að gefa  út
1.250.000  nýja  hluti  í  Össuri  og  auka  hlutaféð  um  0,28%   úr
452.500.000 krónum í 453.750.000 krónur að nafnvirði. Ákvörðunin  var
tekin á grundvelli heimildar stjórnar í B-lið 2. mgr. greinar 2.01  í
samþykktum félagsins.

Bréfin eru  gefin  út  vegna  kaupa félagsins  á  hlut  í  bandarísku
fyrirtæki sem dreifir spelkum og stuðningsvörum. Kaupin hafa óveruleg
áhrif á rekstur Össurar.

Verð fyrir  hvern hlut  er DKK  5,12 (jafngildir  USD 1,03)  og  skal
greitt   í   Bandaríkjadölum.   Andvirði   hlutanna   er    1.287.500
Bandaríkjadalir. Seljendurnir hafa skráð sig fyrir nýju hlutunum.

Nánari upplýsingar veita:
Sigurborg Arnarsdóttir, fjárfestatengill, sími 664-1044