|
|||
![]() |
|||
2016-07-01 17:35:20 CEST 2016-07-01 17:35:20 CEST BIRTINGARSKYLDAR UPPLÝSNINGAR Fagfjárfestasjóðurinn ORK - FyrirtækjafréttirFORK 17 0901 – Tilboð varðandi skuldabréfaeign sjóðsinsFagfjárfestasjóðurinn ORK er útgefandi skuldabréfaflokksins FORK 17 0901 sem er skráður hjá Nasdaq Íslandi. Stærsta eign sjóðsins er skuldabréf útgefið af Magma Energy Sweden og hefur útgefandi nú gert sjóðnum tilboð varðandi breytingar á skilmálum bréfsins. Tilboðið felur í sér að gjalddagi höfuðstóls skuldabréfsins verði 16. júlí 2017 í stað 16. júlí 2016. Tilboðið felur jafnframt í sér að vextir skuldabréfsins verði 5,0% frá og með 16. júlí 2016 í stað núverandi vaxtaprósentu 3,5%. Jafnframt fellur niður tilboð sem sjóðurinn hafði áður fengið í skuldabréfið. Nánari upplýsingar veitir Rekstrarfélag Virðingar hf. sem er rekstraraðili útgefanda í síma 5856500 |
|||
|