2011-02-07 20:45:32 CET

2011-02-07 20:46:26 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Össur hf. - Ársreikningur

Össur - Ársuppgjör 2010


                                     Fréttatilkynning frá Össuri hf. nr. 01/2011
                                                      Reykjavík, 7. febrúar 2011


AFBRAGÐS SÖLUVÖXTUR

Sala - Söluvöxtur var mjög góður eða 9% mælt í staðbundinni mynt. Góður vöxtur í
bæði  spelkum og stuðningsvörum og stoðtækjum hefur jákvæð áhrif á söluna. Salan
nam  alls 359 milljónum Bandaríkjadala á  síðasta ári samanborið við 331 milljón
dala  árið 2009. Sala á spelkum og stuðningsvörum var góð og jókst jafnt og þétt
yfir  árið og var söluvöxturinn 12%, mælt í staðbundinni mynt. Sala á stoðtækjum
var einnig góð og jókst um 8%, mælt í staðbundinni mynt.

Arðsemi  - Össur sýnir  áfram stöðuga arðsemi.  EBITDA framlegð nam 74 milljónum
Bandaríkjadala  eða 21% af  sölu. Framlegð  var 223 milljónir Bandaríkjadala eða
62% af  sölu. Hagnaður á síðasta ári nam 35 milljónum Bandaríkjadala sem er 10%
af sölu samanborið við 23 milljónir árið 2009 og 7% af sölu. Góður vöxtur í sölu
er megin ástæða aukins hagnaðar.

Jón Sigurðsson, forstjóri:"Heilt  yfir eru  niðurstöður ársins  mjög ánægjulegar.  Margar nýjar vörur voru
settar á markað sem voru mikilvægar fyrir árangur okkar á liðnu ári. Við kynntum
spennandi  nýjungar í hefðbundnum vöruflokkum, bionic vörur eins og PROPRIO FOOT
sem  og  nýjar  spelkur  og  stuðningsvörur.  Góður árangur í stoðtækjum, bæði í
Evrópu  og í Bandaríkjunum styður góðan söluvöxt í stoðtækjunum á árinu. Árangur
í sölu á spelkum og stuðningsvörum í Bandaríkjunum er sérstaklega ánægjulegur og
staðfestir styrkleika okkar á þessum markaði."

Helstu áfangar á árinu:
  * Nýjar vörur - Margar nýjar vörur voru kynntar á markaðnum á árinu 2010. Alls
    voru 22 nýjar vörur kynntar og þar með talinn PROPRIO FOOT sem er önnur
    varan í Bionic vörulínu félagsins. Nýjum spelkum og stuðningsvörum, eins og
    Miami Lumbar og Rebound Walker, hefur verið vel tekið, en þessar nýju vörur
    hafa jákvæð áhrif á söluvöxt.
  * Fjárfesting í sölu- og dreifikerfi - Miklar breytingar á sölu- og
    dreifikerfi voru gerðar árið 2009 í Bandaríkjunum, en þessar breytingar hafa
    skilað góðum árangri á árinu 2010. Fjárfestingar í dreifiaðilum og víðtækara
    sölukerfi hafa skilað góðum vexti í sölu og samhliða hafa margar nýjar
    spelkur og stuðningsvörur verið kynntar. Þessir þættir hafa átt stóran þátt
    í þeim árangri sem náðst hefur og vöxtur í sölu hefur verið umfram áætlaðan
    markaðsvöxt í Bandaríkjunum.


Áætlun  2011 -  Fyrir  árið  2011 gera  stjórnendur  ráð fyrir innri söluvexti á
bilinu  4-6%, mælt í  staðbundinni mynt  og að  EBITDA leiðrétt fyrir einskiptis
tekjum og kostnaði verði á bilinu 20-21% fyrir árið í heild.


Símafundur þriðjudaginn 8. febrúar kl. 11:00

Á   morgun,   þriðjudaginn  8. febrúar  2011, verður  haldinn  símafundur  fyrir
fjárfesta,  hluthafa og aðra markaðsaðila þar  sem farið verður yfir niðurstöður
fjórða  ársfjórðungs og ársins 2010. Fundurinn hefst kl. 11:00 GMT / 12:00 CET /
6:00 EST. Á fundinum munu þeir Jón Sigurðsson, forstjóri, og Hjörleifur Pálsson,
fjármálastjóri, kynna afkomu félagsins og svara spurningum. Fundurinn fer fram á
ensku   og   verður   hægt   að   fylgast   með   honum   á  netinu  á  slóðinni
www.ossur.com/investors

Símanúmer til að taka þátt í fundinum eru:
Evrópa: + 44 (0) 20 3043 2436 eða
+46(0)8 505 598 53
Bandaríkin: +1 866 458 40 87
Ísland: 800 8660


Nánari upplýsingar:

Jón Sigurðsson, forstjóri                sími: 515-1300

Hjörleifur Pálsson, fjármálastjóri       sími: 515-1300

Sigurborg Arnarsdóttir, fjárfestatengill sími: 664-1044



Vinsamlega athugið að þetta yfirlit nær aðeins yfir helstu þætti uppgjörsins.
Tilkynningu í fullri lengd á ensku er að finna áwww.ossur.com/investors




[HUG#1486313]