2009-07-04 17:24:32 CEST

2009-07-04 17:25:23 CEST


Islandic English
Alfesca hf. - Yfirtökutilboð

- Leiðrétting: - TILKYNNING UM FYRIRHUGAÐ TILBOÐ TIL HLUTHAFA ALFESCA HF.


Í tilkynningu dags. 28. maí 2009 um fyrirhugað yfirtökutilboð var samanlagður
eignarhlutur samstarfsaðila oftalinn um 2.100.000 hluti eða 0,04% af útgefnu
hlutafé Alfesca hf. og atkvæðisrétti. 

Samanlagður eignarhlutur þeirra sem á þeim tíma höfðu gerst aðilar að samstarfi
um stjórn og rekstur Alfesca hf. nam 3.961.836.633 hlutum eða 67,40% af útgefnu
hlutafé Alfesca hf. og 67,79% af atkvæðisrétti (en ekki 3.963.936.633 hlutum
eða 67,44% af útgefnu hlutafé Alfesca hf. og 67,83% af atkvæðisrétti eins og
ranglega var tilgreint). 

Þeir stjórnendur Alfesca og tengdir aðilar sem á þeim tíma höfðu gerst aðilar
að samstarfinu áttu samtals 64.740.311 hluti eða 1,10% af útgefnu hlutafé
Alfesca hf. og 1,11% af atkvæðisrétti (en ekki 66.840.311 hluti eða 1,14% af
útgefnu hlutafé og atkvæðisrétti eins og ranglega var tilgreint). 

Að öðru leyti hefur leiðrétting þessi ekki áhrif á þær upplýsingar sem komu
fram í tilkynningunni. 

Rétt er að taka fram að þann 22. júní 2009 gengu fleiri stjórnendur til liðs
við samstarfsaðilana og var því samanlagður eignarhlutur samstarfsaðila meiri
en hér greinir þegar opinbert tilboðsyfirlit var dagsett þann 25. júní 2009.