2009-01-16 15:10:23 CET

2009-01-16 15:11:22 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
SPRON hf. - Fyrirtækjafréttir

Sala hluta íbúðalána SPRON til Íbúðalánasjóðs á lokastigi


Viðræður við Íbúðalánasjóð um sölu á hluta af íbúðalánum SPRON að verðmæti 20
milljarða króna eru á lokastigi.  Heildarútlán SPRON við níu mánaða uppgjör
félagsins árið 2008 námu 206,5 milljörðum króna.  Lánin verða seld á bókfærðu
verði og fær SPRON greitt 80% af andvirði lánanna strax en 20% þeirra greiðast
síðar.  Sala íbúðalánanna hefur engin áhrif á eiginfjárstöðu SPRON en markmiðið
með sölunni er að renna traustari stoðum undir lausafjárstöðu félagsins. 

Lánin sem um ræðir eru innlend íbúðalán og hefur sala þeirra til
Íbúðalánasjóðs engin áhrif á lántakendur þar sem SPRON mun annast alla umsýslu
þeirra eins og áður. 

Frekari upplýsingar veitir Guðmundur Hauksson forstjóri í síma 550 1213.