|
|||
2015-04-20 17:29:27 CEST 2015-04-20 17:30:27 CEST REGULATED INFORMATION Skipti hf. - Niðurstöður hluthafafundaNiðurstöður aðalfundar Skipta hf. sem haldinn var 16. apríl 2015· Ársreikningur fyrir árið 2014 var samþykktur. · Samþykkt að hagnaður ársins verði fluttur til næsta árs. · Samþykkt að ójafnað tap verði jafnað með lækkun á yfirverðsreikningi. · Samruni Skipta hf. og Símans hf. þar sem Skipti hf. er yfirtökufélag var samþykktur. · Breytingar á samþykktum félagsins voru samþykktar. · Sjálfkjörið var í stjórn félagsins en eftirtaldir aðilar skipa stjórn þess: Heiðrún Jónsdóttir kt. 090769-4649 Helgi Magnússon kt. 140149-4119 Ingimundur Sigurpálsson kt. 240951-4019 Sigríður Hrólfsdóttir kt. 160167-4169 Stefán Árni Auðólfsson kt. 210772-4729 · KPMG var kosið endurskoðunarfyrirtæki félagsins. Alexander Eðvardsson og Árni Claessen munu annast endurskoðunina f.h. KPMG hf. · Tillaga stjórnar um þóknun til stjórnarmanna var samþykkt. · Við fyrirliggjandi tillögu stjórnar að starfskjarastefnu kom fram svohljóðandi breytingartillaga frá Gildi-lífeyrissjóði. Við ákvæði 4 gr. í tillögum um starfskjarastefnu bætist ný málsgrein sem verði svohljóðandi: „Helstu skilmálar árangurstengdra greiðslna í formi hlutabréfa, kaup- og söluréttar, forkaupsréttar og annars konar greiðslna sem tengdar eru hlutabréfum í félaginu eða þróun verðs á hlutabréfum í félaginu, skulu lögð fyrir hluthafafund til samþykktar.“ Tillaga Gildi-lífeyrissjóðs var samþykkt samhljóða og var starfskjarastefnan borin upp og samþykkt samhljóða svo breytt. · Samþykkt var tillaga um arðgreiðslustefnu félagsins. Félagið stefnir að því að greiða hluthöfum árlega arð og/eða framkvæma endurkaup sem nemur 20 - 50% af hagnaði eftir skatta í samræmi við lög og reglur hverju sinni. · Samþykktar voru ályktunartillögur frá Gildi-lífeyrissjóði um breytingar á samþykktum. Ekki voru fleiri mál á dagskrá fundarins. |
|||
|