|
|||
2013-04-12 11:26:15 CEST 2013-04-12 11:27:16 CEST REGULATED INFORMATION Eik fasteignafélag hf. - FyrirtækjafréttirNiðurstöður aðalfundarÁ aðalfundi félagsins var meðal annars samþykkt að veita stjórn heimild til hækkunar hlutafjár í samræmis við markmið um stækkun og eflingu félagsins. Nær heimildin til allt að tveggja milljarða króna hækkunar eiginfjár í skiptri áskrift, og gildir hún fram að aðalfundi félagsins á árinu 2014. Jafnframt samþykkti hluthafafundur tillögu stjórnar um að greiddur verði út arður að fjárhæð 130.000.000 króna á árinu 2013. Frekari upplýsingar veitir: Garðar Hannes Friðjónsson Forstjóri Eikar fasteignafélags hf. s. 861-3027 |
|||
|