2012-02-13 14:02:47 CET

2012-02-13 14:03:49 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
HS Orka hf - Heildarfjöldi atkvæða og heildarfjöldi hluta

Jarðvarmi slhf kaupir nýtt hlutafé í HS Orku hf


Reykjanesbæ, 13. febrúar 201 2



HS Orka hf tilkynnir að Jarðvarmi slhf, félag 14 lífeyrissjóða sem nú á 25%
hlut í HS Orku hf, hefur tilkynnt að Jarðvarmi hafi ákveðið að að auk hlut sinn
í HS Orku í 33,4% i samræmi við ákvæði samnings félagsins frá 1. júní 2011 um
kaup á hlut í HS Orku. Hlutur Alterra Power í HS Orku lækkar samsvarandi úr 75%
í 66,6%. 



Til þess að þetta verði að veruleika mun Jarðvarmi kaupa ný hlutabréf í HS Orku
að nafnvirði kr. 878.205.943 á genginu 5,35 krónur á hlut og er fjárfestingin
um 4,7 milljarðar króna. Þetta verð er um 15,6% hærra en verðið í upphaflegu
viðskiptunum þegar Jarðvarmi gerðist 25% hluthafi en þá greiddi Jarðvarmi 4,63
krónur fyrir hvern hlut. HS Orka stefnir að því að þessir fjármunir verði
nýttir sem eiginfjárframlag félagsins í stækkun Reykjanesvirkjunar úr 100 MW í
180 MW. Gert er  ráð fyrir frágangi málsins fyrir lok febrúar. 



Varðandi frekari upplýsingar vinsamlegast hafið samband við Júlíus Jónsson,
forstjóra HS Orku hf, sími 4225200 / 8605208 eða Ásgeir Margeirsson,
stjórnarformann HS Orku hf, sími 6652055.