2009-03-03 10:35:40 CET

2009-03-03 10:36:40 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Moderna Finance AB - Fyrirtækjafréttir

Leiðrétting: - Erlendar eignir Milestone seldar og innlendar eignir færðar til Íslands - Birt 2009-03-03 10:14:56 CET


Leiðrétting:  Frétt átti að birtast undir fyrirtækinu Milestone.

Moderna Finance AB, dótturfélag Milestone ehf. í Svíþjóð, hefur undirritað
samninga um sölu á skaðatryggingafélaginu Moderna Forsäkringar og
sjóðstýringarfyrirtækinu Aktie-Ansvar. Þá stefnir félagið að því að selja
líftryggingafélagið Moderna Liv og bankann Banque Invik. Jafnframt verða
íslenskar eignir félagsins, en það eru félögin Sjóvá, Askar Capital og Avant,
seldar til Milestone og komast þar með aftur í eigu íslenskra aðila. Þessar
breytingar hafa ekki áhrif á rekstur íslensku félaganna. 

Salan á eignum Moderna Finance er gerð í samráði við skilanefnd Glitnis sem er
stærsti lánardrottinn Milestone. Með sölu á eignum Moderna Finance er horfið
frá áformum um fjárhagslega endurskipulagningu sænsku Moderna samstæðunnar, sem
eigendur félagsins og skilanefnd Glitnis hafa unnið að undanfarnar vikur.
Endurskipulagningin, sem miðaði að því að verja hagsmuni kröfuhafa, gerði m.a.
ráð fyrir að Glitnir leggði félögunum til nýtt fé til endurfjármögnunar lána.
Stöðugt versnandi aðstæður á mörkuðum og verulegt vantraust sænskra aðila
gagnvart íslensku eignarhaldi varð hins vegar til þess að áætlanir náðu ekki
fram að ganga og því mun Glitnir ekki leggja sænsku félögunum til nýtt fé. 

Það er sameiginlegt mat skilanefndar Glitnis og stjórnenda Milestone að við
núverandi aðstæður sé íslenskum hagsmunum best borgið með því að selja erlendar
eignir Moderna samstæðunnar og að innlendar eignir verði færðar aftur undir
móðurfélagið á Íslandi. 

Áætlað söluverð erlendra eigna Moderna samstæðunnar er mun lægra en vonir stóðu
til að fjárhagsleg endurskipulagning og sala eigna á síðari stigum myndi skila.
Forsvarsmenn Milestone munu á næstu vikum vinna að fjárhagslegri
endurskipulagningu félagsins í samvinnu við helstu lánardrottna sína. 

Skilanefnd Glitnis og stjórnendur Milestone hafa unnið ötullega saman að því á
undanförnum mánuðum að tryggja hagsmuni kröfuhafa sem best. Í ljósi þessa eru
það ákveðin vonbrigði að þær áætlanir, sem mikil vinna hefur verið lögð í, nái
ekki fram að ganga. 


NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITA
Guðmundur Ólason, forstjóri Milestone:  820 9788
Kristján Óskarsson, skilanefnd Glitnis:  844 4411