2017-06-01 15:25:54 CEST

2017-06-01 15:25:54 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reykjavíkurborg - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Reykjavíkurborg – skuldabréfaútboð 14. júní nk


Borgarráð Reykjavíkur samþykkti á fundi sínum þann 1. júní að bæta við útboði í skuldabréfaflokkum Reykjavíkurborgar RVK 53 1 og/eða RVKN 35 1. Um er að ræða breytingu á áður útgefinni útgáfuáætlun þar sem ekki var gert ráð fyrir útboði í júní. Í útboðinu í júní stefnir Reykjavíkurborg að því að taka tilboðum að fjárhæð allt að 5.000 milljónir króna að markaðsvirði. Reykjavíkurborg áskilur sér rétt til að hækka eða lækka útboðsfjárhæð útboðsins, taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum.

Borgarráð vísaði í dag til afgreiðslu borgarstjórnar 6. júní nk. tillögu um hækkun á lánsfjáráætlun um 5.000 mkr vegna uppgjörs á lífeyrisskuldbindingum borgarinnar við Brú lífeyrissjóðs í tengslum við breytingar a samþykktum sjóðsins. Heimild til lántöku á árinu 2017 verður eftir samþykkt þessarar tillögu 8.012 mkr.

Útboðið 14. júní nk verður með því fyrirkomulagi að samþykkt tilboð í hvorum skuldabréfaflokki bjóðast á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) mun ákvarða söluverð.

Heildarstærð RVK 53 1 fyrir þetta útboð nemur alls 19.570 m.kr. að nafnvirði.

Heildarstærð RVKN 35 1 fyrir þetta útboð nemur alls 4.970 m.kr. að nafnvirði.

Viðskiptavakt er á báðum skuldabréfaflokkum.

Uppgjör sölu fer fram mánudaginn 19.júní 2017.

Arion banki, Íslandsbanki, Landsbanki og Kvika fjárfestingarbanki eru umsjónaraðilar útboðsins og hafa einir rétt á tilboðsgerð. Tilboð skulu berast fyrir kl. 16:00 miðvikudaginn 14. júní.

Óskað er eftir tilboðum í samræmi við útboðsskilmála í fylgiskjali:

 

Nánari upplýsingar gefur:

Birgir Björn Sigurjónsson

Fjármálastjóri Reykjavíkurborgar

Sími: 693-9321