2021-02-26 17:04:16 CET

2021-02-26 17:04:16 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Vátryggingafélag Íslands hf. - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendum

VÍS: Breyting í framkvæmdastjórn


Valgeir M. Baldursson, sem gegnt hefur stöðu framkvæmdastjóra kjarnastarfsemi hjá VÍS, hefur tekið ákvörðun um að láta af störfum hjá félaginu, þar sem hann mun á næstunni taka við nýju starfi. Gert er ráð fyrir að Valgeir muni starfa áfram innan VÍS næstu vikurnar og dagsetning starfsloka ekki ákveðin.

Helgi Bjarnason, forstjóri VÍS:

„Ég þakka Valgeiri fyrir frábært starf í þágu VÍS og þátt hans í þeirri miklu uppbyggingu sem hefur átt sér stað á síðustu árum. Um leið og ég þakka honum fyrir samstarfið óska ég honum velfarnaðar í nýju starfi“.