2009-10-07 11:26:19 CEST

2009-10-07 11:27:19 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Eik fasteignafélag hf. - Fyrirtækjafréttir

Samkomulag milli Eikar fasteignafélags, Húsasmiðjunnar og Landsbankans


Í skýrslu stjórnar í árshlutareikningi Eikar fasteignafélags, sem birtur var í
ágúst síðastliðnum, kom fram að Húsasmiðjan, sem er stærsti leigutaki
félagsins, hafi óskað eftir viðræðum um leigulækkun í tengslum við
endurfjármögnun Húsasmiðjunnar. 

Samkomulag hefur náðst milli Eikar fasteignafélags, Húsasmiðjunnar og
Landsbankans þess eðlis að Landsbankinn breytir hluta af kröfum sínum á
Húsasmiðjuna í eigið fé og tryggir þar með áframhaldandi rekstur hennar.  Eik
fasteignafélag mun hleypa Húsasmiðjunni úr einum leigusamning þar sem enginn
rekstur er.  Einnig mun félagið veita Húsasmiðjunni tímabundna leigulækkun sem
mun að hluta til vera tengd árangri Húsasmiðjunnar á næstu árum.  Áætluð áhrif
þess á eigið fé Eikar fasteignafélags eru um tvö hundruð milljón krónur. 

Frekari upplýsingar veitir Garðar Hannes Friðjónsson forstjóri Eikar
fasteignafélags í síma 590-2200.