2017-04-25 19:27:50 CEST

2017-04-25 19:27:50 CEST


REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA

Islandų
Lýsing hf. - Niðurstöður hluthafafundar

Lýsing hf: Niðurstöður aðalfundar


Aðalfundur Lýsingar hf. var haldinn þriðjudaginn 25. apríl 2017 kl. 9 í
húsakynnum félagsins að Ármúla 1, Reykjavík.

Helstu niðurstöður fundarins:

1.    Skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár

Aðalfundur samþykkti skýrslu stjórnar samhljóða.

2.    Ársreikningur fyrir liðið starfsár

Aðalfundur samþykkti ársreikning vegna ársins 2016.

3.    Ákvörðun um ráðstöfun hagnaðar eða taps félagsins

Aðalfundur samþykkti tillögu stjórnar um að hluthöfum verði greiddar 700
milljónir króna í arð vegna ársins 2016.

4.    Tillögur til breytinga á samþykktum félagsins

Engar tillögur lágu fyrir um breytingar á samþykktum félagsins og eru þær því
óbreyttar.

5.    Kosning stjórnar

Sjálfkjörið var í stjórn og varastjórn félagsins og er hún óbreytt frá fyrra
tímabili.

Aðalmenn:

Hörður Gunnarsson
Jóhanna Waagfjörð
Jón Örn Guðmundsson
Magnús Scheving Thorsteinsson
Brynja Steinsen

Varamenn:
Pétur J Eiríksson
Steinn Logi Björnsson

6.       Kosning endurskoðanda

Tillaga stjórnar um að Ernst & Young hf. verði áfram endurskoðunarfélag Lýsingar
hf. var samþykkt.
7.       Ákvörðun um þóknun stjórnar
Aðalfundur samþykkti tillögu stjórnar um óbreytt stjórnarlaun.
8.       Starfskjarastefna
Aðalfundur samþykkti tillögur stjórnar um starfskjarastefnu.
9.       Önnur mál
Önnur mál voru ekki borin upp og var fundi slitið kl. 9:20
Nánari upplýsingar veitir Árni Huldar Sveinbjörnsson, s. 540 1700

[]