2013-02-21 15:05:35 CET

2013-02-21 15:06:38 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Landsbréf hf. - Ársreikningur

Ársuppgjör 2012


Stjórn Landsbréfa hf., sem er rekstrarfélag verðbréfa-, fjárfestingar- og
fagfjárfestasjóða, hefur staðfest ársreikning félagsins fyrir árið 2012.  Í
árslok 2012 önnuðust Landsbréf hf. rekstur 20 sjóða um sameiginlega
fjárfestingu og nam heildarstærð sjóða í rekstri Landsbréfa ásamt eignum í
stýringu 82,2 milljörðum. Landsbréf keyptu á árinu 2012 allan sjóðarekstur
Landsvaka, en bæði félögin eru dótturfélög Landsbankans. 

Hagnaður af rekstri Landsbréfa nam 7 milljónum króna fyrir árið 2012.  Eigið fé
Landsbréfa í árslok nam 686 milljónum króna samkvæmt efnahagsreikningi. 
Eiginfjárhlutfall félagsins, sem reiknað er samkvæmt lögum um
fjármálafyrirtæki, var 78,68% en þetta hlutfall má ekki vera lægra en 8,0%
samkvæmt lögum. 

Landsbréf bjóða mjög fjölbreytt úrval sjóða. Skuldabréfasjóðir Landsbréfa 
skiluðu góðri ávöxtun á árinu og var til að mynda sjóðurinn Landsbréf -
Sparibréf löng með hæstu ávöxtun allra ríkistryggðra sjóða á Íslandi eða 6,3%.
Aðrir skuldabréfasjóðir gáfu einnig góða ávöxtun í samanburði við sambærilegra
sjóði hjá samkeppnisaðilum. Innflæði í skuldabréfasjóði félagsins var nokkuð á
árinu og stækkuðu þeir um 16%. 

Hlutabréfasjóðir Landsbréfa stækkuðu á árinu og stækkaði sjóðurinn Landsbréf -
Úrvalsbréf til dæmis um 94% prósent. Í lok árs nam hann 6,1 milljarði króna.
Landsbréf stofnuðu fjárfestingasjóðinn Landsbréf - Öndvegisbréf undir lok
ársins og var hann orðinn 1,3 milljarðar að stærð við árslok. 

Erlendir hlutabréfamarkaðir skiluðu almennt góðri ávöxtun á árinu 2012 og var
verðbréfasjóðurinn Landsbréf - Nordic 40 sá íslenski verðbréfa- eða
fjárfestingasjóður sem sýndi besta ávöxtun á árinu 2012 eða 28,3 prósent í ISK.
 Sá sjóður er vísitölusjóður og fjárfestir eins og nafnið gefur til kynna í
hlutabréfum í norrænu vísitölunni N40. 

Á árinu var mörkuð sú stefna að leggja aukna áherslu á sérhæfðar fjárfestingar
og seinni hluta ársins 2012 var unnið að þróun ýmissa verkefna á því sviði.
Gert er ráð fyrir að nokkur þeirra verði kynnt sérstaklega á næstu vikum.
Úrvinnsla á eignasafni Horns Fjárfestingarfélags hf. er hluti af þessum
verkefnum. Eignir í stýringu hjá sérhæfðum fjárfestingum voru í árslok alls
29,4 milljarðar króna. 

Nánari upplýsingar um ársreikning Landsbréfa hf. veitir:
Sigþór Jónsson, framkvæmdastjóri Landsbréfa í síma 410 2511.