2017-08-08 11:40:16 CEST

2017-08-08 11:40:16 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Sjóvá-Almennar tryggingar hf - Breytingar á eigin hlutum félags

Reglubundin tilkynning Sjóvá um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í viku 31 keypti Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 19.066 eigin hluti að kaupverð 347.001 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir: 

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð (kr.)
3.8.2017 10:46:19 19.066 18,20 347.001
Samtals   19.066   347.001

 

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 21. mars 2017.

Sjóvá átti 37.691.699 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 37.710.765 eigin hluti eða sem nemur 2,53% af útgefnum hlutum í félaginu.

Sjóvá hefur keypt samtals 29.629.233 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 1,99% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 545.972.890 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 140.943.067 hlutum eða sem nemur 9,46% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 2.500.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi fram að aðalfundi félagsins 2018, en þó aldrei lengur en til 15. mars 2018, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“

 

Nánari upplýsingar veitir:

Sigríður Vala Halldórsdóttir, fjárfestatengill, s. 440-2000 eða fjarfestar@sjova.is