2017-08-09 17:31:02 CEST

2017-08-09 17:31:02 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Útboð ríkisvíxla RIKV 18 0215


Föstudaginn 11. ágúst kl. 11:00 fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisvíxlum í flokknum RIKV 18 0215 sem er með gjalddaga 15. febrúar 2018. 

Lánamál ríkisins áskilja sér rétt til að samþykkja öll tilboð sem berast, að hluta eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa er heimilt að gera tilboð í útboðinu, en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. 

Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. 

Greiðslu- og uppgjörsdagur er þriðjudagurinn 15. ágúst 2017. 

Sótt verður um að RIKV 18 0215 verði tekinn til viðskipta í NASDAQ á Íslandi þriðjudaginn 15. ágúst 2017. 

Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, Lánamálum ríkisins, í síma 569 9635.