2024-07-02 17:45:01 CEST

2024-07-02 17:45:01 CEST


REGLERAD INFORMATION

Isländska Engelska
Landsbankinn hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Landsbankinn hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa


Landsbankinn lauk í dag útboði sértryggðra skuldabréfa þar sem einn flokkur var boðinn til sölu

22 tilboð að fjárhæð 6.240 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI 30 á ávöxtunarkröfu á bilinu 3,77%-3,85%. Tilboðum að fjárhæð 1.900 m.kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 3,79%. Heildarstærð flokksins eftir viðbótarútgáfuna verður 24.660 m. kr.

Uppgjörsdagur er 9. júlí 2024.

Arion banki, Íslandsbanki og Kvika sinna viðskiptavakt með sértryggða skuldabréfaflokka Landsbankans. Lánshæfiseinkunn sértryggðra skuldabréfa Landsbankans er A+ með stöðugum horfum samkvæmt mati S&P.

Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 190/2023. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, Fjármögnun Landsbankans - Landsbankinn.